Baráttan við sýkla og veirur er langhlaup án enda.

Ókeypis og óvæntur fyrirlestur sérfræðilæknis um borð í Fokkervél sem flaug frá Akuryri til Reykjavíkur fyrir um  aldarfjórðungi veitti sýn, sem þá var spánný um þá heimsstyrjöld, sem í vændum væri á 21. öldinni milli þjóða heims og sýkla og veira. 

Hingað til hefur allt umræðuefnið gengið eftir. Læknavísindamenn hamast við að þróa mý og ný lyf í kapphlaupi við ný og ný afbrigði af sýklum og veirum, sem spretta upp með fjölónæmi, sem eingkum er vegna gáleysilegrar meðferðar á lyfjunum og / eða með stökkbreytingum.  

Þrátt fyrir framfarirnar í lyfjsgerð er afar vafasamt að "endalok plágunnar séu í augsýn. 

Rétt eins og sýklar og veirur aðlaga sig sífellt að nýjum og öflugri lyfjum, þurfa þjóðir heims að alaga sig að hinu nýja styrjaldarástandi sem ekki mun linna.  


mbl.is Endalok plágunnar mögulega í augsýn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband