"Besta landfarartæki, sem ég hef átt."

Bílarnir sem síðuhafi hefur átt um dagana, eru líkast til hátt á annað hundraðið, en sá fyrsti, Renault Juvaquatre, var kallaður "Hagamús" skráður á þrjá unga bræður sem happdrættisbíll vorið 1948. 

Hann var með þeim minnstu hér á landi, en til voru tvö eintök af ítalska smælkinu Fiat Cinquecento "Topolino", sem var tveggja manna bíll. 

Annan þessara Topolino hefur mátt sjá á bílasafninu á Ystafelli. 

Síðan Hagamúsin var og hét eru liðin tæp 74 ár en núna er samsvarandi bíll smábíll sama eiganda, minnsti bíllinn í umferð hér á landi, tveggja manna Tazzari Zero rafbílll árgerð 2016. 

Eftir að hann var kominn í gagnið var í fyrstu ekki hægt að sjá að neitt betra landfarartæki væri í boði á markaðnum, en matsatriðið "betra" tók þann pól í hæðina að miða við notagildið og ánægjuna á hverja krónu kaupverðs og rekstrarkostaðs. 

Að vísu bauð rafreiðhjólið Náttfari upp á tífalt lægri orkukostnað og áttfalt lægra kaupverð en Tazzari rafbíllinn, en notagildi rafreiðhjólsins líður fyrir minni hraða, sem er mest 20 km/klst og nýtist aðeins í borgarumferð, helst ekki of löngum leiðum. Léttfeti við Gullfoss

En síðan gafst færi á því sumarið 2020 að kaupa tveggja sæta rafknúið léttbifhjól hér á landi fyrir aðeins 300 þúsund krónur og með aðeins 50 aura orkukostnað á ekna 100 kílómetra.

Kostirnir fram yfir rafreiðhjólið voru miklu meiri hraði, allt að 56 km/klst, betra skjól gegn vindi og regni fyrir ökumann, þægilegri seta, sæti fyrir tvo, 130 kílómetra drægni með því að nýta útskiptanlegar rafhlöður, sem ekki eru á rafreiðhjólum. 

Og orkukostnaðurinn aðeins 50 krónur á ekna 100 kílómetra; til dæmis skottúr til Selfoss og til baka. Yamaha Gogoro

Eftir bráðum tveggja ára reynslu hefur þetta verið notadrýgsta farartækið og mest notað, mun meira en aðeins stærra bensínknúið hjól af gerðinni Honda PCX 125 cc, sem að vísu er langdrægara og hentar fyrir lengri ferðalög, en með tífalt meiri orkukostnað.   

Þetta Super Soco Cux hjól, kallað Léttfeti, er bara eitt af hratt vaxandi úrvali af svipuðum hjólum; til dæmis en Yahama er að setja í gang framleiðslu á aðeins stærra rafhjóli, Yamaha EMF,með útskiptanlegum rafhlöðum og 90 km/klst hámarkshraða.  


mbl.is „Besti bíll sem ég hef ekið“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Það á að slaufa þessari borgarlínuvitleysu og breikka og byggja yfir gangstíga.  Fólk getur þá ferðast til og frá áfangastað á öllum þessum raffarartækjum í skjóli fyrir veðri og vindu  og er miklu ódýrara en borgarlínukjaftæðip

Bjarni (IP-tala skráð) 9.2.2022 kl. 12:47

2 Smámynd: Birgir Loftsson

Þegar þú fórst um Vestfirðina við Stiklugerð, þá fórst þú til Lokinhamra, Svalvoga (Arnarfirði), þá hittir þú ýtustjórann Elís Kjaran sem ruddi veg þangað. Kláraði hann veginn nokkurn tímann? Er hann fær bílum í dag?

Birgir Loftsson, 12.2.2022 kl. 18:04

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband