15.2.2022 | 16:35
Tvennt þarf oft að fylgja kústinum: Skófla, jafnvel tvær; og snjóskafa.
Í nýlegum pistli var fjallað um fjölhæfasta verkfærið sem bílstjórar þurfa að hafa við hendina þegar mikið snjóar; en það er einfaldlega venjulegur strákústur.
Sýnt var hve margfalt meiri afköst náðust við að sópa snjó af bílnum en með öðrum verkfærum, og jafnvel fljóast að sópa snjó á jörðinni.
En í umhleypingun eins og eru núna getur snjórinn verið af misjöfnu tagi, þannig að kústur vinnur ekki almenniega á honum. Ef hitinn breytist úr því að vera rétt ofan við frostmark í það að vera neðan frostmarks, getur lausasnjór breyst í hjarn eða það þéttan snjó að aðeins skófla vinnur almennilega á honum.
Og ef velja á sem allra fjölhæfast verkfæri getur þurft sterka malarskóflu eða stunguskóflu, sem oft er fyrirferðarminni en snjóskófla og getur unnið á klaka.
Myndirnar hér á síðunni eru af því þegar mokaðir voru út þrír bílar af stóru bílastæði.
Þar er tveimur verkfærum stillt upp við minnsta bíl landsins, þar sem þær smellpassa inn í bílinn eins og sýnt var um daginn.
Einnig sést hvað kústurinn er fljótvirkur á stórum flötum eins og þökum og húddum, en við hliðina á bílnum er snjórinn hins vegar það mikið samanbarinn, að best er að nota skóflu, sem sniðtæki til að búa til snjóferninga fyrir moksturinn.
Slydda eða snjókoma og hiti í kringum frostmark | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Berst á móti bræðslu á áli,
bjargar Ómar landi og sjó
og lýsir oft í löngu máli
lit og þykkt og bragði af snjó.
Davíð Hjálmar Haraldsson (IP-tala skráð) 16.2.2022 kl. 10:21
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.