9.3.2022 | 13:26
Allt flækjustig er varasamt og hættulegt.
Í hernaðarsögunni úir og grúir af mismunandi beinum afskiptum stórvelda af styrjöldum, bæði borgarastyrjöldum og styrjöldum þjóða á millum.
Í spðnsku borgarastyrjuldinni sendu ítalir, vesturveldin og Sovétmenn bæði vopn og "áhugahermenn" til Spánar allan tímann, og meira að segja sendi Hitler sérstaka herflugsveit, "Legion" til beinna loftárása á þorp og bæi, og var hinn hrottalega árás á Baskabæinn Guernica til það að æfa og fullframkvæma hinar villimannlegu árásir, sem síðar lögðu Covetry, Hamborg, Belgrad, Dresden og Köln í rúst.
Nú er margfalt meira í húfi í ljósi hótana Pútíns um kjarnorkustríð og þriðju heimsstyrjöldina.
Hvað það snertir er allt flækjustig í þátttöku NATO stórhættulegt og raunar smánarlegt hvað snertir kjarnorkuógnnia hjá þjóðum, sem kalla sig siðmenntaðar.
Fyrir þátttöku Bandaríkjanna í Seinni heimsstyrjöldinni kölluð Kanar sig "vopnabúr lýðræðisþjóðanna" og bæðu seldu þeim vopn og lánuðu síðar með sérstökum "Láns- og leigulögum" sem Churchill kallaði "Magna Carta vorra tíma.
Kínverjar drógust óbeint inn í Kóreustríðið 1951 og þá var það Douglas Mac Arthur hershöfðingi sem hótaði beitingu kjarnavopna, en Truman forseti afstýrði því með því að reka hershöfðingjann.
Segja boð Pólverja ekki gerlegt | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Það sem ég er að sjá hér er að Vesturlönd hafa miðað afar vel áður en þau skutu sig í fótinn, og eru búin að miða aftur, á næstu tá.
Þeir eru búnir að vera að gera sllskyns hluti í Úkraínu sem hafa stuðað Rússa, og nú á að bæta í.
Og það á að draga mig og þig inní þetta líka. Fuck that shit. Má ekki vera í friði fyrir annarra manna stríði einu sinni.
Ásgrímur Hartmannsson, 9.3.2022 kl. 17:29
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.