2.8.2022 | 00:19
Kröflugosin urðu níu og fóru stækkandi.
Kröflueldar stóðu frá 1975 til 1984m og fyrsta Kröflugosið af níu var lítið, hálfgerður "ræfill" svo að notað sé sama orð yfir fyrsta gosið í hinum nýju eldum á Reykjanesskaga, sem þá féllu af vörum jarðfræðings.
Síðan komu nokkrar hrinur, en frá 1980 komu gos, sem urðu smám saman stærri, og varð síðasta gosið 1984 langstærst.
Þorbjörn Þórðarson hefur minnst á það, að svipað gæti gerst á Reykjanesskaga, og í ljósi sögunnar gæti það allt eins gerst.
Það er mjög stutt í eldgos | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Fyrsta gosið er ennþá eina gosið í hinum nýju eldum á Reykjanesskaga.
Vagn (IP-tala skráð) 2.8.2022 kl. 01:55
Strax í framhaldi af fyrsta gosinu við Kröflu tóku við samfelld umbrot sem stóðu í níu ár. Áköf hrina jarðskjálfta með stórfelldum ummyndunum á landinu og stórskjálfta á Kópaaskeri fylgdu í kjölfar gosinu, sem var fyrstu misserin eina gosið af níu.
Ómar Ragnarsson, 2.8.2022 kl. 11:40
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.