26.11.2022 | 23:18
Hrinan nú er vestar en hrinurnar 2007 til 2008.
Á loftmynd RAX sem fylgir viðtengdri frétt á mbl.is sjá móbergshryggurinn Herðubreiðartögl og móbergsstapinn Herðubreið ofarlega til hægri.
Fjallið Upptyppingar er hinsvegar fyrir miðri mynd.
2007 til 2008 voru hrinurar við Upptyppinga í fyrstu og færðust síðar til norðurs og austurs, austur í krepputungu og Álftadalsbungu, en lítillega á svæðinu við Herðubreið og við Öskju.
Núna liggja Herðubreiðartögl, sem eru í raun gígaröð eftir gos undir ísaldarjökli, og Herðubreið á skjálftasvæði, og einnig lítilsháttar við Öskjuvatn, þar er kvika undir á aðeins um tveggja kílómetra dýpi.
Vegna skorts á mælingum frá síðustu öld er erfitt að ráða í það hvað þarna er raunverulega að gerast Norðurgosbeltinu, og verður fróðlegt að fylgjast með því.
Skjálftahrinunni linnir ekki enn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.