Betra er seint en aldrei í vetrarþjónustunni. Furðulegt nýyrði: Snjóveður.

Það þurfti tvo stórhríðarkafla með árs millibili til þess að loksins væri farið í það augljósa verk að koma einhverju viti í skipulagningu og framkvæmd vetrarþjónustu í Reykjavík. 

Annmarkana mátti meðal annars sjá í myndskreyttum pistlum á þessari bloggsíðu í bæði skiptin og vitnað í sextíu ára reynslu Finna til dæmis um það sem kalla má "fyrirbyggjandi snjómokstur."

Nú er bara að láta ekki orðin tóm nægja, heldur taka nýja takta upp næstu vetur. 

Íslenskan á tugi orða sem lýsa snjó og hríðarveðri. Setja verður stórt spurningarmerki við það að fundið var upp hrátt þýtt nýyrði úr ensku; "snjóstormur". 

Í viðtengdri frétt á mbl.is um bætt vinubrögð í vetrarþjónustu hér á landi er nú sett á flot nýyrðið "snjóveður." 

Vel er hægt að flokka stig þjónustunnar með númerum og velja úr tugum íslenskra orða sem heiti á misjðfn snjóalðg og snjókomu. 

Þótt efast megi um að þegar á hólminn er komið verði kostnaðarlega hægt að leysa þetta verkefni, eru þó þau skil núna miðað við ástandið hingað til, að sett eru fram æskileg markmið í stað þess að hjakka ævinlega í sama ómögulega farinu án viðleitni til endurbóta.  

"Orð eru til alls fyrst" segir máltækið. 


mbl.is Svona vill borgin bæta snjómokstur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Vonandi höfðu þau vit á að láta prenta skýrsluna á nógu harðan pappír svo að hún sé að minnsta kosti nothæf til snjómoksturs.

Ég ætla samt að stilla þeim væntingum í hóf.

Guðmundur Ásgeirsson, 13.4.2023 kl. 00:13

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband