30.5.2023 | 21:47
Hagræðing, styttri boðleiðir, sparnaður, - stundum hið gagnstæða?
Eitt af mörgum dæmum um sparnað í opinberum rekstri er Samgðngustofan. Virtist borðleggjandi, svo sem vegna þess, að enda þótt ólík lðgmál gildi um mörg farartæki á landi, sjó og í lofti, finnast ýmis sameiginleg viðfangsefni, svo sem nauðsyn á líkamlegri heilsu og færni og augljósum atriðum eins og sjón og heyrn.
Þegar heilsufarsskoðanirnar voru orðnar afar fullkomnar í fluginu.
Síðuhafi sá fyrir sér sparnaðinn og hagræðið af því að nýta sér það að fara í gegnum fluglæknaskoðanir sérmenntaðra lækna, ekki aðeins til þess að viðhalda atvinnuréttindum í samræmi við stundað flug og njóta hinna vönduðu vottorða þegar ökuskírteina var krafist.
En það var heldur betur ekki því að heilsa. Í ljós kom, að fluglæknisskoðunin fyrir réttindi til að stjórna loftfari með allt að nítján farþega um borð var ekki tekin gild til þess að stjórna einkabíl sínum!
Niðurstaðan blífur óhagganleg: Óhagræði að fyrirferðarmeira og flóknara kerfi með lengri boðleiðum og meira umstangi.
![]() |
Tíu stofnanir sameinaðar í þrjár |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.