Hjólin koma sterk inn í sumarbyrjun.

Þótt hinir bestu bílar komi kannski ekki allir sterkir inn nú í sumarbyrjun gæti nýr og hressilegur ferðamáti gert það. Léttir,eigandi og TF-ROS 

Hér á síðunni hefur talsvert verið fjallað um hjólin, sem eru í örri þróun, einkum rafknúin hjól með útskiptanlegum rafhlöðum. 

Meðan ekki eru komnir skiptikassar við vegi og götur geta sparneytnustu bensínknúnu hjólin brúað bilið fyrir lengri vegalengdir. 

Dæmi um það er Honda PCX 125 cc hjólið hér á myndinni, sem er 20 sinnum léttara og ódýrara en rafbíll, og áreiðanlega með minna kolefnisspor í smíði, rekstri og förgun. 

Sniglarnir fagna 40 ára afmæli félagsins með ýmsum hætti, til dæmis sýningu að Krókhálsi 8 um páskana, sem hefst 28. mars.  

 


mbl.is Besti bíll í heimi hefur enn ekki selst
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband