Af hverju er hljótt um STV?

Í kosningabaráttunni hingað til hefur alloft verið minnst þann möguleika að kjósa tvisvar ef enginn frambjóðandi fær meirihluta greiddra atkvæða.  

Sumir hafa imprað á því að hafa kerfi, þar sem kosið sé tvisvar ef enginn fær hreinan meirihluta, en mótbáran gegn því er sú, að þá sé hætt við því, að forsetakjörið verði of flókið og dýrt. 

En það eru til fleiri aðferðir, sem geta dregið úr ókostum þess kerfið, sem notað er hér á landi. 

Þekktast er líkast til kerfi sem heitir Single transferable vote, skammstafað STV. 

Þá eru nöfn allra frambjóðenda á kjörseðlunum, en kjósendur raða frambjóðendum með því að gefa þeim númer.  

Helsti kostir þessa kerfis er að að aðeins þarf aö halda einar kosningar í stað tveggja, og að líkindin aukast oft á því að sá frambjóðandi nái kjöri, sem flestir geta sætt sig við.


mbl.is Helga komin með lágmarksfjölda undirskrifta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Grímur Kjartansson

"geta sætt sig við."

Ætli maður kjósi ekki með tilliti til þess til að koma í veg fyrir á sá sem maður getur ómögulega sætt sig við hljóti kosningu

Grímur Kjartansson, 25.4.2024 kl. 21:07

2 identicon

Auðvitað á að kjósa milli tveggja efstu ef engin fær hreinan meirihluta i fyrstu umferð.  Getum ekki verið með þjóðhöfðingja sem kjörinn var með 30% atkvæða.  Það er ekki lýðræði. Kostnaðurinn af slíku eru smáaurar í stóra samhenginu.

Bjarni (IP-tala skráð) 26.4.2024 kl. 00:17

3 Smámynd: Ómar Ragnarsson

Sterkast er að kjósa þann sem fær atkvæðið í heilu lagi og vinni eins og unnt er að því að að sá sem maður getur ómögulega sætt sig  fái hljóti kosningu.

Ómar Ragnarsson, 26.4.2024 kl. 22:42

Bæta við athugasemd

Hver er summan af þremur og sextán?
Nota HTML-ham

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband