17.12.2008 | 22:02
Askja skelfur.
Í tvö ár hafa verið skjálftahrinur á svæði sem er 25 - 30 km fyrir austan Öskju og hafa vísindamenn tengt það hreyfingum hraunkviku, sem streymir í átt til yfirborðs.
Í dag brá svo við að myndarleg skjálftarhrina varð í Öskju og fyrir norðvestan hana, yfir í Dyngjufjalladal.
Páll Einarsson jarðfræðingur sagði mér í kvöld að ólíklegt væri að skjálftarnir í Öskju boðuðu eldsumbrot, því að land hefði verið að síga þar allar götur frá 1973.
Hins vegar benti margt til að hraunkvika streymdi undan Öskju til austurs í átt að skjálftasvæðinu þar, sem upphaflega var við suðurenda Upptyppinga en færðist síðan yfir á Álftadalsdyngju, skammt fyrir norðaustan Upptyppinga og hefur síðan verið undanfarnar vikur við lítið fell, skammt norðan við Upptyppinga, sem heitir Hlaupfell.
Allt er því enn á huldu um það hvernig fer um kvikuna, sem er að brjótast þarna neðan jarðar og veldur því að land rís þar.
Athugasemdir
Það væri gaman að setja upp gátuleik, hvar og kannski hvenær mun gjósa á þessu svæði.
Gestur Guðjónsson, 17.12.2008 kl. 22:27
Askja er líkleg
Haraldur Bjarnason, 17.12.2008 kl. 22:55
Kannsk að það verði ekki fyrir austan eða hvað segir í spádómum Nostradamusar
" Þau verða dæmd til gjalda fyrir glæp sem þau hafa ekki drýgt. Með yfirborðsmennsku verður hinu mæta lýðveldi gert rangt til."
Þetta er hluti úr einum tekið af vef snerpu líkist þetta ekki bankahruninu.
Og síðan " Hin merka sjávarborg í Atlantshafi, sem er í umhverfi flóa og silfurbergs, verður á vetrarsólstöðum og um vorið fyrir barðinu á ógnvekjandi vindhviðu."
Vetrarsólstöður eru jú um helgina nú er að sjá hvort kallin hefur enn einusinni rétt fyrir sér .Jón Aðalsteinn Jónsson, 17.12.2008 kl. 23:34
Ekki er stein nú Askja geld,
og allur ketill mér féll í eld,
á uppboði var í öskju seld,
af öskureiðum Jóni Ísfeld.
Þorsteinn Briem, 18.12.2008 kl. 01:15
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.