9.3.2009 | 23:35
Tíma eytt í þras um tímaþröng.
Alveg er kostulegt að horfa og hlusta á þingmenn þessa stundina eyða tímanum í að þrasa um það hvort þeir séu komnir í tímaþröng í þingstörfum og hvort þeir beiti málþófi eða ekki.
Saka sjálfstæðismenn um málþóf | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Væri skondið - ef þeir hefðu TÍMA til að standa í þessu þrefi ;)
Hlédís, 9.3.2009 kl. 23:55
Það sýnir ábyrgð sjálfstæðismanna í þessum þrengingum, eða hitt þó heldur.
Þarf ekki að breyta þessu, fækka þingmönnum í 33, hafa ráðherrana utanþings og vita hvort ekki sparast eitthvað við það? Það er enginn flokkur með slíkt á stefnuskrá sinni
Jón Thorberg Friðþjófsson, 10.3.2009 kl. 06:28
Íslandshreyfingin hefur verið með ráðherra utanþings á stefnuskrá sinni frá upphafi. Síðar hafa komið fram hugmyndir okkar um fækkun þingmanna.
Ómar Ragnarsson, 10.3.2009 kl. 09:45
Greinilegt er að þingmenn Sjálfstæðisflokksins hafa áttað sig á að vera komnir í stjórnarandstöðu - loksins - eftir nær 18 ára samfellda þrásetu í ríkisstjórn. Nú eru þeir á móti bókstaflega öllu - nema auðvitað sjálfum sér.
Auðvitað þarf einhvern tíma að hefja umræður um stjórnarskrárbreytingar. Þær eru mikilvægar rétt eins og margt annað.
Kveðja
Mosi
Guðjón Sigþór Jensson, 10.3.2009 kl. 09:49
Það eyða ALLIR tíma til einskis á hinu blessaða háa Alþingi; ekki bara Sjálfstæðismenn.
Sigurjón, 10.3.2009 kl. 12:03
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.