"Lambalæri", nautn sumarblíðunnar.

Ég heyrði um daginn hjá Lönu Kolbrúnu Eddudóttur að texti Hank Williams, Jambalaya, fjallar um uppáhaldskjötrétt og nokkurs konar tákn borgarinnar New Orleans í Bandaríkjunum.

Sömuleiðis að Fats Domino, sem kom þessu lag hátt á vinsældalista á upphafstíma rokksins, héldi svo mikið upp á þennan rétt, að hann léti útbúa hann fyrir sig hvar sem hann færi um heiminn.

Þetta hafði ég ekki vitað fyrr og fór að hugsa um hvaða hliðstæðu væri að finna á Íslandi. Og viti menn: Það er jafn langt orð og með þrjá sömu sérhljóðana af fjórum, sem sé lambalæri.

Og varla hægt að hugsa sér kjötrétt sem er eins rammíslenskur og eins ofarlega í huga og á grilltímum sumarblíðunnar.

Fram spratt textinn "Lambalæri" og í framhaldi af því skellti ég mér með Lúdó-sextett og Stefáni í stúdíó og kláraði í dag að hljóðrita "Lambalæri" við lag Hanks Williams.

Lagið er helgað þeirri fjölbreyttu stuðstemningu sem grill og lambakjöt færa íslensku þjóðinni.

Í útgáfu okkar er þetta dúett tveggja manna sem rekast inn á stað þar sem verið er að grilla lambalæri og eins og heyrist á textanum er fjörugt og föngulegt fólk á staðnum.

Mér fannst alveg tilefni til þess arna, samtals hundrað ára starfsafmæli mín og sextettsins, báðir aðilar búnir að vera að í bransanum í 50 ár.

Þar að auki lágu leiðir mín og Lúdó-sextetts oft saman á upphafsárum rokksins.

''Ég söng lagið "Ég hef aldrei nóg" inn á disk í gamla daga með Lúdó og söng fleiri lög með þeim á tónleikum, auk þess sem ég gerði nokkra texta fyrir Lúdó svo sem "Því ekki?", "Halló, Akureyri!", "Ég er glataður án þín," "Rokk um alla blokk" og "Hafnarljós.".

Við stefnum á að gera eitthvað saman í haust því að ég á ýmsa texta við lög, sem Lúdó hefur spilað í gegnum tíðina og það er virkilega gaman af því að taka upp gamlan þráð með þessum síungu rokkurum

Á tónlistarspilaranum hér vinstra megin á síðunni  á að vera hægt að smella inn á lagið "Lambalæri", en mér tekst það reyndar ekki nú og það verður að bíða morguns að sjá, hvað veldur því.

Hins vegar er textinn hér fyrir neðan.

Í athugun er síðan að skutla laginu inn á tonlist.is 

 

LAMBALÆRI. (Jambalaya)

 

Vertu hress vegna þess, vinur kæri,  /

að komast bærilega í tæri við tækifæri.  /

Taktu séns, trylltan skrens, gaurinn glæri. /

Njóttu nú þín við þetta grín. Þó nú væri !  /

Meðan að blóðheit bjóðast góð lambalæri. /  

 

Nú skal gramsa og kjamsa og gæða  /

sér á góðgæti´á glóð og það snæða,  /

leika milla og grilla og glefsa´í 

gómsæta lostætið, sem ilmar, nautn nefs í, /

kneifa í stólum Kóka-kóla og Pepsí.

 

Lambalæri´eru ljúf eins og lömbin.  /

Þegar lömbin koma´á diskinn, þá kýlist vömbin. /

Mat og víf, nautnalíf, mjög ég mæri.  / 

Þessvegna óð er okkar þjóð í lambalæri. /

 

Lambalæri nú lyst okkar vekur  / 

meðan lendar sínar sprellandi gellan skekur. / 

Tökum séns, trylltan skrens, gaurinn glæri ! /

Njóttu nú þín við þetta grín. Þó nú væri !  /

 

Ég og þú étum nú. Enginn efar  /

að ef að glás er af krás maður slefar.  /

Nautnaseggirnir, sleggjurnar hneggja. /

Vöðvaða steggina hér leggirnir eggja. /

Úti við veggi drekkum dreggjarnar geggjað!  / 

 

Lambalæri´eru ljúf. Í mér hrærir  /

þessi lífsnautn, sem oss ærir og endurnærir. /

Eftir sult farðu´á fullt, gaurinn glæri,   /

annars flengi ég þig í keng og hengi´í snæri !

 

Lambalæri´eru ljúf eins og lífið,  /

lostætt nammi þegar hrífur oss dívu-vífið.  /

Mat og víf, nautnalíf mjög ég mæri.  /

Þess vegna óð er okkar þjóð í lambalæri !  /  

Þess vegna óð er okkar þjóð í lambalæri !  

 

 

 


mbl.is Óvenju mikil umferð á mánudegi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Alltaf flottastur Ómar !

Ína (IP-tala skráð) 14.7.2009 kl. 00:40

2 Smámynd: Hildur Helga Sigurðardóttir

Skemmtilegur texti, heyrði flutningin í útvarpi í gær.

Hjartanlega ósammála þér hins vegar, minn kæri, um "míni-þinghús" á Þingvöllum...

Hildur Helga Sigurðardóttir, 14.7.2009 kl. 02:48

3 Smámynd: Óskar Þorkelsson

ég sá þig í umferðinni í dag á orange fiat :) helv flottur :)

Óskar Þorkelsson, 14.7.2009 kl. 03:17

4 Smámynd: Ómar Ragnarsson

Hugmyndin sú arna um aðstððu til móttöku fyrir gestafjölda upp í ca 100-200 manns er samt sem áður innifalin í ábendingum UNESCO um aðstöðu á Þingvöllum.

Ómar Ragnarsson, 14.7.2009 kl. 07:38

5 Smámynd: brahim

Lagið Lambalæri í spilaranum þínum virkar ekki...en önnur lög gera það. Ágæt lög.

brahim, 14.7.2009 kl. 14:55

6 Smámynd: Ómar Ragnarsson

Ég læt vita af því um leið og þetta er komið í lag. Á meðan geta þeir sem kunna lagið Jambalaya raulað textann í huganum.

Ómar Ragnarsson, 14.7.2009 kl. 15:49

7 Smámynd: Þorsteinn Briem

Farðu nú varlega á vegunum, Ómar minn:

„Þrír erlendir ferðamenn urðu fyrir bílveltu og voru fluttir með sjúkrabíl á Ísafjörð í skoðun til vonar og vara, en þeir voru með minni háttar áverka.“

Bílveltur á Snæfellsnesi og Dynjandisheiði

Þorsteinn Briem, 14.7.2009 kl. 17:04

8 Smámynd: Brjánn Guðjónsson

flottur

Brjánn Guðjónsson, 16.7.2009 kl. 10:54

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband