Nýtt viðfangsefni og tilefni fyrir "læk" : Gosið í Holuhrauni.

Haraldur Sigurðsson eldfjallafræðingur lýsir eðli eldgosanna í Holuhrauni og undir Dyngjujökli og Bárðarbungu á þann veg, að vegna þess hve hraunið er  þunnfljótandi eigi það auðvelt með að "leka" upp úr sprungum, sem myndast við gliðnun á jarðskorpunni.  

Ég tel hér komið viðfangsefni fyrir marga, meðan annars vararíkissaksóknara, ritstjóra Kjarnans og Pál Vilhjálmsson að "læka" þessa frétt af tveimur ástæðum.

1. Athyglisverð lýsing á eðli málsins.

2. Nýtt "lekamál" sem er kærkomin viðbót við það lekamál, sem hefur verið svo lengi í gangi að það fer að verða þreytandi.  

 


mbl.is Saksóknari „lækar“ ummæli um lekamálið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þorsteinn Briem

Helgi Magnús hann gaf læk,
hélt þar ekki vatni,
sori var og synd ótæk,
sagði Palli natni.

Þorsteinn Briem, 20.9.2014 kl. 21:55

2 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

Ef ætti að opinbera öll lekamál á eyjunni blá-skýjamenguðu samtímis, þá þyrfti meiriparturinn af Íslandsbúum áfallahjálp, og ekki seinna en strax.

Kerfis-greiningardeildar-toppar áfallaþurfandi eru því miður jafn blá-mengunarspilltar eins og eigendur stjórnmálaflokkanna á Íslandi. Þeir embættis/banka"eigendur" í sjálftökuflokka-toppablandinu ákveða hverjir eiga að lifa, og hverjir eiga að deyja drottni sínum.

Sjálfskipuðu ofanjarðardrottnararnir eru helsjúkir, og þurfa fyrirbænir og hjálp. Enginn mannlegur máttur getur læknað helsjúka valdagræðgi heimsveldisstjóranna örfáu, sem sitja í toppi tortímingarpíramída jarðarinnar. Íslands-samfélagið er bara nánast ósýnilegur dropi í hafinu, sem við berum öll jafna ábyrgð á að fari eftir siðferðisreglum.

M.b.kv.

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 20.9.2014 kl. 22:36

3 identicon

X er með kynlegan kæk,
kímnin er bara svo stæk,
ekkert hirðir um nafnleynd,
er missir hann dómgreind,
og lætur sig dett'oní læk!

Þjóðólfur í Frekjuskarði (IP-tala skráð) 21.9.2014 kl. 14:08

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband