Mótsagnirnar í illmennunum.

Það eru hreinar línur þegar við fæðumst. Í byrjun er ekki hægt fyrir barn í reifum að lifa af nema í 100% eigingirni og tillitsleysi, en þeir eiginleikar eru frumþættir í skaphöfn illmenna.

Adolf Hitler er yfirleitt nafnið sem nefnt er þegar rætt er um illmenni og margir hafa talið það í takt við eðli hans og skaphöfn að hann hefði verið búinn að kænsku og útsjónarsemi búinnn að sviðsetja dauðdaga sinn með því að láta brenna lík tvífara síns og Evu Braun.

En það hefði verið algerlega á skjön við grunnstefið í einstrengislegri sýn hans á hlutverk sitt og þjóðar hans. Hann var með Messíasarkomplex og trúði því að forsjónin hefði falið honum það hlutverk að reisa Þjóðverja úr öskustó niðurlægingar Versalasamnninganna og skipa þeim á stall sem öflugasta heimsveldinu.

"Aldrei aftur 1918!" var skýlaus krafa hans sem allt annað varð að víkja fyrir. 

Aldrei aftur skyldu Þjóðverjar gefast upp fyrir óvinum sínum á meðan þeir réðu enn yfir landi sínu. 

Margt bendir til þess að Hitler hefði látið Bretum eftir heimsveldi þeirra að mestu ef þeir hefðu samið frið 1940. Hitler dáðist að breska heimsveldinu og vildi koma sér upp svipuðu heimsveldi án þess að ganga um of á hlut Breta. En allt varð það að vera undir þeim formerkjum að Þjóðverjar yrðu lang voldugasta heimsveldið. 

Hitler fyrirleit sviksemi og mat tryggð ofar öllu svo framarlega sem það þjónaði þessum heimsveldistilgangi hans, sem allt varð að víkja fyrir. 

Það takmark hafði forgang og þess vegna sýndi hann sjálfur sviksemi lét hann drepa Ernst Röhm og sveik griðasamkomulagið við Stalín.

Allt stríðið fordæmdi hann þá hershöfðingja sem gáfust upp í stað þess að fremja sjálfsmorð og hélt því staðfastlega fram að hann myndi sjálfur aldrei gera slíkt.

Uppgjöf Von Paulusar í Stalíngrad var hámark aumingjaskapar að dómi hans.

Ótal tilraunir voru gerðar til þess að drepa Hitler en eftir því sem hann slapp oftar varð hann sannfærðari um að guðleg forsjón héldi yfir honum verndarhendi.

Persónuleiki Hitlers spannaði allt litrófið, frá bræðiköstum til ítrustu kurteisi, kímni og góðsemi í persónulegum samskiptum, já, einstakra persónutöfra sem margir vitnuðu um.

En krafan um yfirburði og aldræði hins aríska kynstofns var alger og ófrávíkjanleg auk þess sem hægt var að beisla undirliggjandi kynþáttahyggju og þjóðernisrembu með því að stilla upp sýnilegum óvinum þjóðar og ríkis og gera "Gyðingavandamálið" og "lausn" þess að forgangsatriði.

Þess vegna var óhugsandi annað en að Hitler, útvalinn af guðlegri forsjón að eigin dómi, léti fallast fyrir eigin sverði eða byssukúlu eftir atvikum frekar en að falla lifandi í hendur óvinanna.

Illugi Jökulsson hefur skrifað um þá hugsun Hitlers að leika hlutverk í dramatískri nútíma endurgerð germanskra snilldarbókmennta og að flótti úr rústum Berlínar hefði verið óhugsandi í hans huga.  

Að þessu leyti komumst við Illugi Jökulsson að svipaðri niðurstöðu varðandi hugsun Hitlers um hinn rökrétta dauðdaga í stíl við germanskar fornbókmenntir í kjölfar þess að heiglarnir Himmler og Göring höfðu á lokadögum 3ja ríkisins svikið hann og málstaðinn til að bjarga eigin skinni. 

Með byssukúlunni í höfuð sitt tryggði Hitler það að kjörorðinu "aldrei aftur 1918!" yrði fylgt til enda.  

Hitler var ekki eini einræðisherrann í sögunni sem lét einfalda sýn og hugsun leiða sig út í hreina í valdasjúka villimennsku. En hún varð að lokum stórfelldari hjá honum að umfangi og viðbjóði en hjá öllum öðrum. 

    


mbl.is Illskan er ógnandi og heillandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þorsteinn Briem

Þorsteinn Briem, 28.6.2015 kl. 15:31

2 identicon

SIÐBLINDAN OG VIÐBJÓÐURINN LEYNIST NÚ ANSI VÍÐA:

Nú voru stjórnvöld í Túnis(þar sem ríkistrúin er Islam) að láta loka 80 Moskum. þar sem linnulaus áróður og heilaþvottur, hefur átt sér stað á ungmennum allt frá barnæsku, gegn öllum vestrænum gildum, og öllu sem vestrænt er. En á sama tíma er íslenskum skattgreiðendum gert að setja 20 miljónir í byggingu Mosku í Feneyjum,og Reykjavíkurborg er látin styrkja byggingu Mosku í sogamýrinni, með því að gefa lóð undir Moskuna.Það er löngu vitað að þetta eru gjörólíkir menningarheimar, sem eiga enga samleið, og munu aldrei gera.Nú berast féttir frá Svíþjóð (stundin.is) að lýtalæknar þar í landi, framkvæmi skurðaðgerðir þar sem kynfæri kvenna eru enduruppbyggð eftir umskurð, og er vandamálið sagt verulega stórt, því á sama tíma læðast fjölskyldur til mið austurlanda eða Afríku, og láta umskera dætur sínar, og Sænskir skattgreiðendur borga. Er ekki eitthvað mikið að hjá okkur norðulandabúum.?   Nú stígur félagsmálaráðherra fram og tilkynnir, að við ætlum að taka við 750 flóttamönum álega næstu þrjú árin, ég spyr hverjir eru þessir "Við" er það Framsóknarflokkurinn, eða er það ríkistjórnin.                                 Á sama tíma eru fimm þúsund fjölskyldur á skrá hjá Fjölskylduhjálp Íslands eftir matar aðstoð, og 1200 hundruð manns eru á biðlista hjá Félagsbústöðum eftir húsnæði.                                                                 Er ekki lágmarks krafa að landmenn fái að kjósa um þetta ráðabrugg félagsmálaráðherra, eða t.d. 2-3 fjölskyldur á ári sem eru kristnar, þannig að meiri líkur eru á að þær samlagist þjóðinni, fljótt og vel.                   Svo má nú ekki gleyma því að lönd í Mið-austulöndum eiga gríðarmikið ónýtt landsvæði, og þetta eru ríkustu þjóðir heims, og afhverju skyldu þær ekki aðstoða trúbræður sína í neyð.                                                         

Halldór Guðmundsson (IP-tala skráð) 28.6.2015 kl. 18:06

3 identicon

Hann var dópisti.

https://www.youtube.com/watch?v=8DJr5q4Bf_s

Elín Sigurðardóttir (IP-tala skráð) 28.6.2015 kl. 18:13

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband