Alþjóðlegt verkefni.

Hið risavaxna verkefni varðandi lofthjúp jarðar getur aldrei, eðli málsins vegna, orðið annað en alþjóðlegt.

Það er vegna þess að lofthjúpurinn er bara einn og sameiginlegur fyrir alla jarðarbúa.

Þess vegna eru aðgerðir hverrar þjóðar til að minnka mengun hans alveg eins viðeigandi heima eins og í öðrum löndum.

Útblástur bíls í dreifbýli á Íslandi vegur eins þungt og jafn mikill útblástur bíls í New York.

Við Íslendingar getum lagt sitt af mörkum í verkefnum hér heima eins og í fjarlægum löndum þar sem við höfum aðstöðu til þess að taka til hendi og það er af hinu góða að gera gagn, þar sem það liggur vel við fyrir okkur, þótt það fari fram í fjarlægu landi.   


mbl.is Milljón í Græna loftslagssjóðinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Riddari "Hringborðs Norðurslóða"(!) setur 130 milljónir ISK í ímyndarverkefni og Óri missir sig í fögnuði.

"Við Íslendingar getum lagt sitt af mörkum í verkefnum hér heima eins og í fjarlægum löndum þar sem við höfum aðstöðu til þess að taka til hendi og það er af hinu góða að gera gagn, þar sem það liggur vel við fyrir okkur, þótt það fari fram í fjarlægu landi."

Gunn­ar Bragi Sveins­son ut­an­rík­is­ráðherra er þægur fylgifiskur Þorpara Norðursins úti í Singapúr, mannsins sem logið hefur að heimsbyggðinni að jöklar Himalayafjalla séu að bráðna; að hafís Norðurheimskautsins sé að bráðna; að Grænlandsjökull sé að bráðna; að jöklar Suðurheimskautsins séu að bráðna.

Ekkert af þessu hefur reynst rétt, en Þorpari Norðursins heldur spunanum áfram í forherðingu hins reynda stjórnmálamanns sem hefur gert út á lífslygina - á kostnað skattgreiðenda - áratugum saman.

"Framund­an á dag­skrá ut­an­rík­is­ráðherra er síðan aðild­ar­ríkjaþing lofts­lags­samn­ings SÞ í Par­ís, COP21, þar sem auk­in fjár­fram­lög til lofts­lags­mála [á kostnað almennings að sjálfsögðu] munu gegna mik­il­vægu hlut­verki til ná sam­komu­lagi um nýj­an lofts­lags­samn­ing."

Og Óri fabúlerar um meint "risavaxin verkefni" . . .

Hilmar Hafsteinsson (IP-tala skráð) 13.11.2015 kl. 09:11

2 identicon

Vinstri grænir eru eiginlega búnir að eyðileggja græna litinn.  Maður setur stórt spurningarmerki við allt grænt núorðið.  Er þetta olíusjóður?

Elín Sigurðardóttir (IP-tala skráð) 13.11.2015 kl. 09:56

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband