Eyjafjallajökull, útifundur og afsögn ráðherra eins og hvalreki.

Strax í upphafi gossins í Eyfjallajökli, þegar það setti flugsamgöngur úr skorður um alla jörðina í raun, var því spáð hér á síðunni að aldrei í sögu Íslands hefðu land og þjóð fengið eins mikla og verðmæta auglýsingu.

Á tveimur dögum, 4. og 5. apríl, fékk Ísland aftur verðmæta auglýsingu, vegna þess hvernig mál snerust úr því að upplýsa um einstaklega mikil not Íslendinga á aflandsfélagum í skattaskjólum yfir í risavaxinn mótmælafund, afsögn forsætisráðherrans og skipun nýs í staðinn.

Flest sem gerðist í þessi tvö skipti, 2010 og 2016, var á yfirborðinu neikvætt, en reyndst jákvætt þegar upp var staðið, hvalreki fyrir umfjöllun erlendra fjölmiðla og þar með áhuga ferðafólks á landinu.  


mbl.is Umfjöllun um Ísland náði til 1,3 milljarða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þorsteinn Briem

Íslands hamingju allt að vopni,
einkum þó hann Simmi,
og soldið Ómar sá útopni,
sáralítill krimmi.

Þorsteinn Briem, 20.4.2016 kl. 15:07

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband