Þetta eru Kverkfjöll, sem eru 35 kílómetra frá Bárðarbungu.

Stór mynd, sem sýnd er á mbl.is í frétt af 3,5 stiga jarðskjálfta í Bárðarbungu og er hér efst á síðunni, er alls ekki af Bárðarbungu, heldur af Kverkfjöllum.Kverkfjöll

Kverkfjöll eru um 35 kílómetra fyrir austan Bárðarbungu og næst okkur á myndinni er skriðjökullinn Dyngjujökull.

Neðar á síðuna set ég tvær myndir af Bárðarbungu, þar sem horft er til hennar úr vestri og var önnur þeirra birt hér á mbl.is í ágúst 2014 þegar aðdragandi gossins í Holuhrauni hófst.

Á efri myndinni af Bárðarbungu sjást Kverkfjöll í fjarska á bak við Dyngjujökul, sem er á milli Bárðarbungu og Kverkfjalla. 

Bárðarbunga, Dyngjujökull, Kverkfjöll

Þótt Kverkfjöll séu svolítið óskýr á myndinni, sem birt er á mbl.is í dag vegna skýja efst á þeim, sjást Kverkjökull og Neðri-Hveradal svo að það er fráleitt að birta þessa mynd, svona álíka og að birta mynd af Bláfjöllum í stað Skarðsheiðar.  

Bárðarbunga 3. 8. 14. nr2


mbl.is Jarðskjálfti í Bárðarbungu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband