Færsluflokkur: Bloggar
11.7.2014 | 21:53
Formaðurinn snuprar eigin flokksmenn.
Meðal þeirra fyrstu sem lýstu sig andvíga málflutningi oddvita framboðslista Framsóknar í Reykjavík voru Sigrún Magnúsdóttir, formaður þingflokksins, Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra og Hallur Magnússon.
Síðan bættust fleiri í hópinn, svo sem Ómar Stefánsson fyrrum oddviti flokksins í Kópavogi, og einnig sagði fjórði maður á B-listanum í Reykjaví sig strax frá framboðinu vegna ósættis við þennan málflutning.
Nú hefur formaður flokksins heldur betur tekið til hendi og rétt kúrsinn af með því að snupra i raun þetta samflokksfólk sitt með þvi að segja að umræðan sem það setti af stað hafi verið nýr lágpunktur og skikka það til að marséra i takt, eins og sagt var að flokkurinn hefði stundum gert á dögum Steingrims Hermannssonar án þess að hann þyrfti að tukta nokkurn mann til.
![]() |
Umræðan um Framsókn nýr lágpunktur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 21:56 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
11.7.2014 | 16:38
Allir ferðamennirnir þurfa að halda að þeir hafi bara verið óheppnir.
Kannski verður þetta sumar likt sumrinu í fyrra og þar með ósköp líkt tugum sumra á fyrri áratugum, sem við erum búin að gleyma, því að flest sumrin eftir aldamótin síðustu voru afbrigðilega góð, einkum þau síðustu fyrir 2013.
Við Íslendingar höldum kannski að erlendu ferðamennirnir, sem hingað koma og lenda i rigningunni, af því að þeir voru fyrirfram búnir að bóka gistingar á ákveðnum dögum í stað þess að reyna sveigja ferðalagið eftir landshlutum, viti í sumarlok að sumarið hafi verið votviðrasamt og rakki landið niður, okkur til tjóns.
En það þarf ekki að vera þannig, því að þeir sjá aðeins veðrið hér í þá viku eða hálfan mánuð sem flestir dvelja hér og hafa þeir auðvitað ekki hugmynd um veðrið allar hinar vikurnar og mánuðina, nema því sé sérstaklega haldið að þeim.
Jafnvel á einstökum blíðviðrissumrum eins og voru 2010-2012 koma rigningarkaflar í öllum landshlutum.
Þeir ferðamenn, sem lentu í þeim, voru óheppnir og vissu það.
Þeir, sem lenda í svipuðu núna, taka því vafalaust á sama hátt sem óheppni nema hamast sé við að halda að þeim upplýsingum um úrkomu og vinda allt sumarið fram á haust.
![]() |
Það er vott en mun það versna? |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
11.7.2014 | 09:58
Skeytingarleysið orðið að dyggð.
Fróðlegt er að lesa ýmis skrif á netinu þar sem lítið er gert úr viðfangsefnum í þjóðlífinu, sem varða meginatriði þess að sem flest fólk geti lifað bærilegu lífi.
Þegar Landsbankinn birti tölur um að húsnæðisvandinn væri jafnvel stærri hjá einstökum þjóðum í Evrópu en hjá okkur mátti sjá skrif í bloggpistlum um óþarfa væl vegna þeirra mála hér á landi.
Einnig mátti sjá skrifað, að þeir sem létu sig þau mál varða nánast gripu þau sem fagnaðarefni til þess að geta leitað eftir viðfangsefnum fyrir sig og sína sýn á þjóðmálin og sæu tækifæri fyrir sig í þeim til þess að hygla sumum á kostnað annarra, gera sér mat úr vandræðum þeirra.
Í augum þessara bloggskrifara virðist umhyggja fyrir högum þeirra samborgara, sem verst standa, vera löstur og tækifærismennska, en skeytingarleysið vera dyggð.
Þessi hópur bloggskrifara fjallar á svipaðan hátt um þá, sem vara við hröðum og háskalegum loftslagsbreytingum af mannavöldum og segja að menn eins og Al Gore og þeir vísindamenn sem fjalla um þau mál, geri það eingöngu af tækifærismennskku til að græða á því sjálfir.
Einna lengst gengur þessi gagnrýni þegar sagt er að vítaverðar hugmyndir þess efnis að byggja upp Skeifuna eftir brunann á dögunum. Með þeirri uppbyggingu muni tjónþolar brunans og tjónið af honum verða nýtt til framkvæmda sem aðrir muni hagnast á.
Þessi gagnrýni er raunar í ósamræmi við þá gagnrýni á Jóhönnustjórnina að hún hafi sýnt vítavert sinnuleysi í því að byggja upp eftir Hrunið.
Bloggskrifararnir segja að sé ekkert sé að marka málflutning Al Gore og vísindamanna af því að þeir græði á því að fjalla um loftslagsbreytingar og hafi atvinnu af rannsóknum og vísindastörfum.
Fólk, sem andæfir skefjalausri stóriðjustefnunni með tilheyrandi náttúruspjöllum, er kallað öfgafólk og "atvinnumótmælendur" en hinir, sem vilja keyra áfram á annað hundrað virkjanakosti eru kallaðir hófsamir skynsemdarmenn.
Ekki kannast ég við að þeir 25 sem settir voru í steininn vegna Gálgahraunsmálsins hafi fengið krónu fyrir að standa daglega vakt í hrauninu í tæpan mánuð eða fyrir að mótmæla á öðrum vettvangi.
Hitt liggur fyrir að forstjórar fyrirtækjanna sem beitt er í þágu skammgróða og hernaðar gegn landinu eru hálaunamenn og fá sín háu laun fyrir að fylgja þessari stefnu sinni fram.
Aldrei eru þeir kallaðir "atvinnumeðmælendur". Það orð finnst ekki í orðaforðanum, sem notaður er, þar sem "stækkun friðlands" þýðir í raun virkjun inni í friðlandinu og "sjálfbær þrótun og endurnýjanleg og hrein orka" stærstu jarðvarmavirkjana þýðir í raun rányrkju sem tæmir auðlindina á nokkrum áratugum með mestu loftmengun frá nokkru fyrirtæki á Íslandi.
Rétt er að geta þess, að stundum er línan á milli mannúðar og forsjárhyggju óljós og sömuleiðis milli umhyggju og afskiptasemi og ævinlega skal hafa varann á í þeim efnum.
En fyrrnefnd gagnrýni á það að fólk með ákveðnar stjórnmálaskoðanir fagni tækifærum til að færa sér í nyt neyð annarra er ósanngjörn.
Samkvæmt ofangreindum bloggskrifum má álykta, að til dæmis starfsemi Rauða krossins og starf heilbrigðisstétta sé af hinu vonda, af því að fólkið, sem vinni að þessum málum hagnist á því að neyðin sé sem allra mest og að það hafi þeim mun meira að gera sem sjúkdómar, hungur og örbirgð sé meiri .
![]() |
Þúsundir í húsnæðisvanda |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 12:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
10.7.2014 | 19:53
Kaldastríðs meðferð á vinum.
Það þótti eðlilegt á tímum Kalda stríðsins að Rússar njósnuðu um Bandaríkjamenn og öfugt. Og hluti af stríðinu að njósnurum væri vísað úr landi sitt á hvað.
Hins vegar getur það varla verið eðlilegt hvernig bandaríska leyniþjónustan hagar sér gagnvart helstu vina- og bandalagsþjóðum sínum, að ekki sé talað um njósnir um leiðtoga þeirra.
Hegðun af þessu tagi er sjúkleg og komin út fyrir allt velsæmi.
Viðbrögð Bandaríkjaforseta hafa verið linkuleg og valdið vonbrigðum.
Hann á geta haft stjórn á undirmönnum sínum og þjónum og sagt um það hið sama og var kjörorð hans í forsetakosningunum 2008: "Yes, we can", "Já, við getum það!"
![]() |
Bandarískur njósnari rekinn frá Þýskalandi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
10.7.2014 | 16:20
Sérstaða Vesturbyggðar að engu höfð.
Vestfirðir eru eini landshlutinn þar sem samgöngumál eru í svipuðu horfi og fyrir hálfri öld. Þetta er eini landshlutinn sem ekki hefur alþjóðlegan flugvöll og ekki er hægt að fljúga til Vestfjarða nema í björtu.
Það þýðir að á veturna er ekki hægt að fljúga þangað nema 3-4 klukkustundir á dag í skammdeginu, og þá kannski einmitt þann tíma sólarhringsins þegar veðrið þann daginn er verst.
Á veturna er akstursvegalengdin frá Patreksfirði til Ísafjarðar á fimmta hundrað kílómetra.
Það myndi heyrast hljóð úr horni ef heilbrigðisstofnarnirnar á Akranesi og Húsavík yrðu sameinaðar.
Nýbúið er að leggja niður Patreksfjarðarflugvöll og þar með yfir tvo fjallvegi að fara þaðan til næsta flugvallar.
Hvað eftir annað er sérstaða Vesturbyggðar og Vestfjarða að engu höfð. Það er miður.
![]() |
Þetta er bara ruddaskapur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 19:38 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
10.7.2014 | 09:13
Ónógur undirbúningur ?
Í knattspyrnuliði hefur hver maður sitt hlutverk og svæði á vellinum. Bestu liðin hafa þaulæft allt, sem að þessu lýtur, í smáu og stóru.
Vegna þess hve algengt er að vítaspyrnukeppni ráði úrslitum í leikjum á HM er athyglisvert að ekki skuli hafa verið ákveðið fyrirfram, jafnvel með löngum fyrirvara hjá hollenska liðinu, hverjir væru örugglega tiltækir til að taka vítaspyrnur í slíkri keppni.
Louis van Gaal landsliðsþjálfari sagði eftir leikinn við Costa Rica að hann hefði ekki látið aðalmarkvörð liðsins vita af því fyrirfram að hann myndi skipta honum út á síðustu mínútu framlengingar til þess að hugsunin um það truflaði ekki einbeitingu hans í leiknum.
Ef svipuð hugsun hefur ráðið því að van Gaal var ekki með það geirneglt að leikmenn hans annað hvort tækju spyrnurnar í í ákveðinni röð eða að þeir hlýddu boðum um það, þá virkaði það ekki í gærkvöldi, heldur kom allt rót í liðinu varðandi það frekar í koll liðinu.
Þjálfarinn skipti ekki út markvörðum í vítaspyrnukeppninni, enda hefði slík skipting ekki haft sömu áhrif á mótherjana eftir að búið var að reyna það einu sinni.
Styttri armlengd aðalmarkvarðarins heldur en varamarkvarðarins háði honum í minnsta kosti einni spyrnu.
![]() |
Tveir neituðu að taka fyrstu spyrnu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 09:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
9.7.2014 | 23:48
Hin endanlega og fullkomna tækni.
Það lítur vel út á pappírnum að hafa enga glugga á flugvélum, skoða allt umhverfi hennar á tölvuskjám og getað stjórnað þeim hvaðan sem er innan úr flugvélinni.
Þegar notkun á flóknum tölvukerfum, vökvakerfum, "fly-by-wire" tækni er komin á það stig má gamli Murphy fara að vara sig með sitt "úrelta" lögmál.
Það verður spennandi að fljúga í slíkum flugvélum og toppurinn á öllu að heyra dásemdum tækninnar lýst með róbótsrödd í hátalarakerfi hennar:
"Þessi þota er búin fullkomnustu og altækustu tækni sem völ er á, betri en nokkur önnur önnur þota í heimi. Í henni er ekkert sem getur bilað....urg...urg...ekkert sem getur bilað....urg....urg...ekkert sem getur....urg....urg....ekkert sem ....urg....urg....ekkert.....urg....urg.....urg......urg."
![]() |
Gluggalausar flugvélar framtíðin? |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
9.7.2014 | 16:17
Slæmar fréttir og góðar fréttir.
Þegar fólk verður fyrir áföllum, smáum eða stórum, getur oft verið huggun harmi gegn að leita að bjartri lið á málinu. "Fátt er svo með öllu illt, að ei boði gott."
Það, að ná botninum, hefur hent marga, meðal annars okkur Íslendinga, þegar við töpuðum fyrir Dönum 14:2, sem er sama markahlutfall og 7:1.
Svona endemis tap og það að hafa náð botninum er að vísu slæm frétt, en góða fréttin er sú, að frá botninum liggur aðeins ein leið, þ. e. upp á við.
Íslendingar tóku þrjú ár í að vinna úr 14:2 tapinu og gerðu jafntefli við Dani þremur árum síðar.
Önnur góð frétt sem hin hliðin á slæmu fréttinni: Ósigrar eru til að læra af þeim, og því stærri sem ósigurinn er, því meira er hægt að læra af honum.
![]() |
Botninum hefur verið náð |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
9.7.2014 | 08:46
Holurnar stækka og dýpka sífellt og þeim fjölgar.
Í meira en 40 ár hefur Kjalvegur aldrei verið eins slæmur og nú.Það get ég fullyrt eftir kynni við hann öll þessi ár, nú síðast í gær.
Þessa dagana er miklu meiri umferð um veginn en áður og fjöldinn allur af rútum fer reglulega um hann.
Ástæðan er sú að vegurinn er, þrátt fyrir allt, fær öllum fólksbílum, ef ekið er hægt og með mikilli aðgát, og það er því auðveldara fyrir ferðafólk, sem vill aka um islenska hálendið, að velja Kjöl heldur en Sprengisand, enda ekki lengur yfir neinar úbrúaðar ár að fara á Kili og leiðin mun styttri en Sprengisandsleið.
Þar að auki er ekkert svæði við Sprengisandsleið, sem hægt er að aka að og líkist Hveravöllum eða Kerlingarfjöllum.
Gamli vegurinn, sem liggur frá Hvítárbrú við Hvítárvatn og norður fyrir Hveravelli, er kominn á það stig að það er ekki hægt að hefla hann, nema rífa hið þjappaða undirlag hans upp og velta með því steinum upp á yfirborðið.
Sums staðar eru holurnar ekki holur heldur gímöld.
Spurningin er hvaða markhópi eigi að þjóna. Ef sá markhópur er fólk, sem þráir ögrandi og tvísýnt viðfangsefni í akstri um íslenska hálendið og hefur nægan tíma til að hossast á lafhægri ferð um óveg, er Kjalvegur í núverandi ástandi eitthvað sem getur gefið því slíka upplifun.
En sá markhópur kann að vera stærri sem myndi vilja fá ögn þægilegri og ánægjulegri ferð um sléttan óupphleyptan malarveg.
Til þess að hægt sé að bjóða upp á slíkt þyrfti að bera ofan í núverandi veg heppilega ögn leirblandna möl, svipaða þeirri sem nú er á Bláfellshálsi.
Engin afsökun er fyrir því að hinn upphleypti vegur á nyrsta kafla leiðarinnar sé versti kaflinn og engin ástæða fyrir því að láta hið svakalega ástand hans líðast, svo fjölfarin sem þessi leið er orðin.
![]() |
Kjalvegur sagður skelfilegur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 08:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
8.7.2014 | 22:51
7:1 er sama markahlutfall og 14:2, sjö á móti einum.
Markahlutfallið 7:1 og 14:2 er það sama, 7 á móti 1.
Munurinn er sá að 7:1 var í undanúrslitaleik á HM milli tveggja af bestu landsliðum heims, en 14:2 var í vináttulandsleik tveggja þjóða, sem þá voru neðarlega á heimslistanum.
Sum af mörkum Þjóðverja komu á svipaðan hátt og mörk Dana í 14:2 leiknum, þar sem allt virtist ganga upp og falla með þeim, en allt ganga á afturfótunum hjá Brössunum.
Ef eitthvað jákvætt er að finna við mesta burst í sögu undanúrslita HM er það fólgið í því að fjarvera Neymars skipti ekki minnsta máli.
Hann hefði aldrei getað breytt neinu um markaregn Þjóðverja og því síður séð um að Brassar skoruðum sjö eða fleiri mörk.
Öðru máli gegndi um miðvörðinn og fyrirliðann Thiago Silva, en hann gat sjálfum sér um kennt að hafa komið sér í leikbann að óþörfu.
Hugsanlega var það hluti af ókostum þess að spila jafn fast og hörkulega og Brassarnir gerðu, en það setti blett á leik þeirra á mótinu og gerði liðið að mörgu leyti ólíkt léttleikandi og prúðum liðum þeirra á HM á fyrri tíð. Að lokum hefndi þessi harka sín í þessum leik.
![]() |
Sögulegur sigur Þýskalands |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:53 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)