Færsluflokkur: Bloggar

Verstu spár duga ekki.

Nú er búið að þylja spár um vonskuveðrið sem gengur yfir landið og biðja fólk um að fara eftir þeim.

Spáin fyrir Suðausturland hefur verið ljótust, spáð 28 metra meðalvindi eða 57 hnútum, sem er ofsaveður, en í byljum undir fjöllum eins og í Öræfasveit, er stundum hægt að bæta helmingi við fyrir hviðurnar, sem verða þá meira en 80 hnútar.

Nú klukkan 15:00 fóru hviðurnar á Fagurhólsmýri upp í 37 m/sek og fara vaxandi. Vestar í sveitinni verða byljirnir mun harðari en á Mýrinni.

Hrakningarnir, sem nú heyrist um, voru því fyrirsjáanlegir en gerðust og gerast samt.  


mbl.is Fara fimm ferðir á bryndrekanum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Oftast vindstyrkurinn sem er of lítill.

Veðurspákortin á vedur.is eru með annmörkum, sem lýst er í tengdri frétt á mbl.is.

Þeir eru aðallega fólgnir í skekkjum á veturna, þar sem veðurbreytingar koma ekki á alveg réttum tíma og einkum eru spár um vindstyrk með skekkjum, sem oftast felast í því að vindurinn er sýndur of lítill.

Spurt er hér á blogginu af hverju þessi kort séu ekki lögð niður, úr því að hvort eð er þurfi að hafa hliðsjón af textaspá og láta hana ráða, ef mismunur er á.

Ég teldi það misráðið að leggja þessi kort niður, því að kostir þeirra vega að mínum dómi miklu þyngra en gallarnir. Þau gefa miklu fjölbreytari upplýsingar en textaspáin og hjálpa mjög við að fá yfirsýn yfir líklegt veður á hverju svæði.


mbl.is Gagnslítil spákort
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hreinsa bílana áður en frystir.

Þegar frystir eftir slyddu eða snjókomu í frostleysu getur verið erfitt að opna bíla og hreinsa þá fyrir akstur. Því rétti tíminn til að gera þetta áður en farið er í háttinn í kvöld, því að framundan er köld norðanátt svo langt sem séð verður fram í tímann.

Nú um jólin þurfa flestir að hafa bílana tiltæka til að fara á milli ættingja og vina þar sem á annað borð verður fært vegna veðurs, en óveður verður víðast um land, en þó síst á suðvesturhorninu.

Ég dreif mig í það í kvöld að hreinsa þá bíla, sem ég vil hafa tiltæka hvenær sem ástæða gæti orðið til tafarlausrar brottfarar.

Það getur líka verið jólasteming í snjókomunni, sem var að renna sitt síðasta að ég vona.

Gaman væri að vita hvort þessi desembermánuður verður ekki með fleiri snjóþekjudaga en flestir desembermánuðir síðustu árin.

Af því að þetta er dimmasti mánuðurinn á norðurhveli jarðar kemur best að hafa hvíta jörð í honum.

Þá eiga upphafsorðin í "Er líða fer að jólum..." síður við: "Drungi í desember..."

Ekki var minna atriði að hreinsa af FRÚnni en bílunum, sem er allmikið verk, því að skafa þarf eða moka snjó af um 20 fermetra yfirborði svo að hún sé fleyg.

Þar að auki kostar klakahögg og snjómokstur að snúa henni í hálfhring og binda hana vel niður áður en vindurinn snýst í hvassa norðanátt.

Tölvan mín er með leiðindi gagnvart myndkortum og myndkortalesurum svo að það gæti farið svo að ég geti ekki sett þær myndir inn á facebook og blog.is sem ég gjarnan vildi af því að það eru nú einu sinni að koma jól.  

Bíður fyrramáls að finna út úr því. Útilokunaraðfer við rannsókn mína bendir til að tengingin milli kortalesara og tölvu sé biluð.

Sé svo, er hægt að bjarga því í fyrramálið eða jafnvel fyrir lokun búða í kvöld.

Tek það hinsvegar fram að ég er einhver vonlausasti maður sem fyrirfinnst til að ráða fram úr bilunum varðandi tölvur og myndavélar.


mbl.is Óveður á Holtavörðuheiði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þegar fyrirsögnin getur gefið skakka mynd.

Fyrirsagnir á viðtölum og fréttum eru vandmeðfarnar. Þær þurfa að vera lýsandi fyrir heildarinnihald fréttar eða viðtals en jafnframt áhugaverðar og laða lesendur eða áhorfendur að.

Hið síðastnefnda vill stundum bera hið fyrra ofurliði. Indriði G. Þorsteinsson, ritstjóri Tímans,sagði: "Góð frétt má aldrei líða fyrir sannleikann."

Hefði kannski getað bætt við: "...má aldrei líða fyrir hálfsannleikann."

Fyrirsögnin á yndislegu viðtali við Ragnheiði Elínu Clausen er þess eðlis, að þessi fyrirsögn getur gefið ranga mynd af heildarinnilhaldi viðtalsins. Faðir hennar og föðurbróðir höfðu dásamlegan og stundum hæðinn og hálfkæringslegan húmor sem kemur fram í tilvitnun Ragnheiðar Elínar í lok viðtalsins.

En sá sem aðeins les fyrirsögnina gæti fengið þá hugmynd að allt viðtalið sé af Ragnheiðar Elínar hálfu í einhverri fýlu eða ólund en það er alveg þveröfugt.

Allt annað kemur í ljós með því að lesa viðtalið allt og ég sendi Ragnheiði Elínu og hennar fólk mínar bestu jólakveðjur.


mbl.is „Ég vil ekkert í jólagjöf, ég vil bara spark í rassinn“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hálf öld frá hröðustu og stærstu kuldasveiflunni.

Síðastliðið vor var liðin rétt hálf öld síðan slíkt norðanáhlaup reið yfir landið að vori til að ekkert viðlíka hefur komið síðan.

Áhlaupið í apríl 1963 var svo slæmt vegna þess að það höfðu verið það mikil hlýindi á undan, að komið var brum á tré og gras farið að grænka, jafnvel að springa út blóm og gróður þar sem skjól var.

Á örfáum klukkustundum féll hitinn um meira en 20 stig, úr nokkurra stiga hita í hörkufrost ! Áhlaupið stóð í nokkra daga og olli meiri skemmdum á gróðri að vori til en orðið hafa í líkast til heila öld.

Jólaáhlaupið nú getur ekki orðið eins slæmt og vorhretið 1963 að því leyti til að enginn nýgræðingur getur farið illa út úr því á þessum árstíma. Vonandi falla ekki skæð snjóflóð eins og gerðist í tvígang árið 1995.


mbl.is Gæti orðið dýpsta lægð 21. aldar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Heimilisjól.

Jólin í ár verða líklega mestu "heimilisjól" í langan tíma ef verðurspár ganga eftir, að minnsta kosti á norðanverðu landinu og undir fjöllum á sunnanverðu landinu.

Það kostar að vísu minni ferðalög í heimsóknir en þeim mun drýgri tíma til að njóta jólanna í friðsæld heima hjá sér, en friðsældin og rólegheitin eru aðall jólanna.

"Fátt er svo með öllu illt að ei boði gott."


mbl.is Versta norðankast um jól í hálfa öld
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hve lengi getur þetta gengið?

Þjóðskipulag Norðurlandanna, lýðræði og minni ójöfnuður milli fólks en víðast annars staðar hefur lengið vakið aðdáun víða um heim. Þess vegna stingur það einhvern veginn í stúf að í þremur þeirra skuli vera konungdæmi, sem getur engan veginn talist lýðræðislegt fyrirkomulag.

Ef aðeins rúmlega 40% þeirra Svía, sem taka afstöðu í skoðanakönnun, vilja að núverandi konungur verði áfram þjóðhöfðingi væri eðlilegast að fara að vilja fólksins og skömminni skárra að kjósa um bæði konungdæmið og þjóðhöfðingjann eftir ákveðnum reglum.

Spurningin er hve lengi núverandi fyrirkomulag geti gengið hjá jafn grónum lýðræðisþjóðum og Norðurlandaþjóðirnar eru.


mbl.is 48% Svía vilja að konungurinn segi af sér
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sérstök fræðigrein með "Gríðarvöl" í hendi.

Það má kalla það sérstaka fræðigrein að þekkja straumvötn og finna bestu vöðin yfir þau og slíkt lærist ekki nena með langri reynslu eins og Gísli Ólafur Pétursson er gott dæmi um.

Í sumar lauk ég við að gera sérstaka mynd sem ber heitið "Akstur í óbyggðum" og var frumsýnd á Degi íslenskrar náttúru. Hún ætti að geta verið komið í gagnið næsta sumar í upphafi ferðamannatímans um hálendið.

Í myndinni bregður fyrir köflum úr svipaðri sjónvarpsmynd sem ég gerði fyrir 35 árum með þjóðsagnapersónunni Guðmundi Jónassyni.

Þar förum við inn í Þórsmörk og að Krossá, þar sem bíll hafði lent í hremmingum viku fyrr. Þá hafði straumþunginn verið mikill og við það að lenda með annað framhjólið uppi á steini í ánni nægði það til að halla honum nægilega mikið til þess að velta bílnum.

Í þessu ferðalagi eða öðru,´sem ég fór síðar með Guðmundi sagði hann mér frá stafnum eða stönginni sem hann notaði við að vaða varasamar ár. Nafnið á verkfærinu var "Gríðarvölur".

Guðmundur óð út í Krossá í myndinni, fann steininn og fjarlægði hann.

Hann óð einnig yfir Jökulsá til að finna besta vaðið fyrir fólksbíl yfir hana.

Jón bróðir minn var í tíu sumur í Öræfasveit þegar þar voru allar ár óbrúaðar og lærði þessa kúnst svo vel, að enda þótt ég reyndi að læra af honum, var það hann sem ég treysti á í röllunum, sem við fórum í.

Í því erfiðasta, ralli fyrir alvöru jeppa á stórum dekkjum, fórum við á Subaru yfir ár, sem jepparnir DSC00230flöskuðu á og í gríðarlegu flóði í Gilsá austast í Fljótshlíð sigldum við Subarunum niður ána undan straumnum !

Af því og afrekum Subarusins bæði í því ralli og í alþjóðarallinu, sem skilaði Helgu minni og Ninnu dóttur minni fyrstum kvenna í mark í alþjóðlegri rallkeppni daginn áður en við bræðurin tókum hann í jepparallið mætti segja ítarlegri sögu, en í akstrinum á honum yfir árnar kom vel í ljós hve mikilvæg löng og fjölbreytileg reynsla er í svona ferðalögum.

En myndin hér á síðunni er af Subaru ´81 í minni eigu, þar sem hann er í leiðangri í Gjástykki fyrir nokkrum árum. Hann brillerar í myndinni "Akstur í óbyggðum" og ég er nú að leggja af stað á honum frá áritunum á Akureyri til Reykjavíkur.   


mbl.is Veður árnar og finnur vöðin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þetta og fleira var ekki á blaði 2001.

Aðeins lítill hluti af þeim óheyrilegu náttúruspjöllum, sem Kárahnjúkavirkjun hafði í för með sér, er að koma í ljós, kannski örfá prósent. Eitt af því er ógnarhröð færsla óss Lagarfljóts. 714800[1]

Það verður varla seinna en í lok þessarar aldar sem miðlunargeta Hálslóns verður þorrin miklu fyrr en reiknað var með vegna stórum meiri framburðar aurs í það en reiknað var með, en þetta sást greinilega á vorin strax eftir fulla myndun lónsins 2008.

Stuðlagáttin, gilið, sem Kringilsá rann um niður i Hjalladal, hafði þá þegar fyllst upp af auri og breyst í sléttar leirur.

Fullyrt var við ferðamenn fyrir 2007 að Töfrafoss myndi ekki hverfa, nema þá aðeins neðri helmingur hans í september. Hið rétta er að lónið nær kílómetra upp fyrir fossinn þegar það er fullt og fossinn hverfur strax í júlí.

Menn skelltu skolleyrum við því að Lagarfljót myndi kólna og deyja.

Ekki var minnst á hröðun á færslu óss Lagarfljóts og þaðan af síður á "mótvægisaðgerðir" vegna þess.

Fyrir liggja orð forstjóra Landsvirkjunar að arðsemi virkjunarinnar sé óviðunandi og því verður vafalaust ekkert gert til að breyta ósnum enda er það hvergi á blaði. img_9302[1]

Landeigendur sáu hilla undir milljarða gróða vegna vatnsréttinda en með dómi og grimmu bréfi lögfræðings Landsvirkjunar um það hve þessi virkjun væri áhættusöm og erfið voru þeir dollaradraumar drepnir snarlega.

Fullyrt var að leirfok í lónstæðinu fram eftir sumri yrði vel viðráðanlegt þótt það blasti við að útilokað væri að koma í veg fyrir það að bestu veðurdagana fram eftir júlí yrði ólíft fyrir þeim á svæðinu.

Fullyrt var að dýrleg og fjölsótt ferðamannaparadís myndi opnast við lónið í góðviðrum sumarsins með tjaldbúðum, stífluklifri, siglingum og gönguferðum. IMG_9339

Lónið var á mynd Landsvirkjunar sýnt svo blátært, að það sæist til botns.

Hið rétta er að lónið er kúkbrún drullusúpa með aðeins 5 sm skyggni!

Þegar ekki sjást handa skil fyrir leirfoki við lónið í hlýjum hnjúkaþeynum og mestu hitunum snemmsumars eru myndir Landsvirkjunar af "ferðamannaparadísinni" aðhlátursefni eða öllu heldur grátlegar.

Þeir, sem ekki voru blindaðir af græðgi og auðtrúa fyrir 2008 voru kallaðir "óvinir Austurlands" og sá sem þetta skrifar var þegar árið 1999 kallaður "óvinur Austurlands númer eitt" bara fyrir það eitt að sýna báðar hliðar þessa máls í stað þess að stunda einhliða kranablaðamennsku og þöggun. 


mbl.is Ós Lagarfljóts fluttur til suðurs
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ritsnillingur á uppleið.

Hin síðari ár hefur Guðmundur Andri Thorsson vakið vaxandi athygli mína fyrir ritstörf sín. Hann er pistlahöfundur í fremstu röð og hefur margsýnt hve mikið og agað vald hann hefur á stíl og máli.

Það er unun að lesa skrif hans.  

Nýjasta bók hans hefur vakið athygli og lof og bókin Valeyrarvals eftir hann er tilnefnd til bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs.

Hann er vel að viðurkenningu Rithöfundasjóðs Ríkisútvarpsins kominn.

Í haust lágu leiðir okkar saman vegna bókar minnar "Manga með svartan vanga  - sagan öll" því að Andri var prófarkalesari hennar hjá Forlaginu.

Það kom strax í ljós að þetta var mikið happ fyrir mig því að það var ekki fyrr en undir lok ágúst, sem sú djarfa ákvörðun var tekin að ráðast í útgáfu bókarinnar.

Það kallaði á hraðar hendur, bæði hjá mér og Andra, því að ekki aðeins þurfti að endurskoða bókina "Manga með svartan vanga" frá árinu 1993, heldur einnig að stytta hana lítillega en bæta við 60 nýjum blaðsíðum.

Ég á Guðmundi Andra mikið að þakka fyrir að það tókst að gefa þessa bók út í tæka tið án þess að lenda í skakkaföllum. Að minnsta kosti hefur allt gengið vel hingað til hvað hana varðar.

Samstarf okkar var afar ánægjulegt og Andri sýndi slíka smekkvísi og fagmennsku, að breytingar hans og harður en bráðnauðsynlegur niðurskurður þar sem það átti við, runnu ljúflega í gegn hvað mig snerti.

Það hefur verið gefandi að kynnast honum og ég óska honum innilega til hamingju með viðurkeninguna.

Ég hygg að hún verði ekki sú síðasta á ferli hans, því að hann sé ritsnillingur á uppleið.   

 


mbl.is Fékk viðurkenningu frá RÚV
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband