Sjónarsviptir fyrir sunnan og norðan. Hvað sögðu "völvurnar"?

Stórhátíðir með þéttum mannfjölda upp á tugþúsundir eins og Þjóðhátíðin í Eyjum og Fiskidagurinn mikli á Dalvík, hverfa vegna sóttvarnartakmarkana, í sumar , og er svo sannarlega sjónarsviptir af þeim.  

Síðuhafi man þó þá tíð þegar Fiskidagurinn var löngu ófæddur og Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum svipur hjá sjón í ágúst 1973 eftir nýlokið Heimaeyjargos. 

Það yrði fróðlegt að sjá það borið saman un næstu áramót, hverju svokallaðar völvur spáðu um við síðustu áramót að myndi gerast á því herrans ári 2020 og bera það saman við það sem gerðist í raun. 

Eldgosið í Heimaey er þó áreiðanlega sá atburður Íslandssögunnar, sem mest kom á óvart. 

Sem er í raun undarlegt, úr því að Surtseyjargosið stóð árum saman sex árum fyrr.  

En það var venja að segja á þessum árum að Helgafell væri útbrunnið eldfjall. 

Annað átti heldur betur eftir að koma á daginn. 


mbl.is Þjóðhátíð „borin von“ vegna fjöldatakmarkana
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Á að ganga endanlega frá fjöru alls Seltjarnarness?

Samanlögð lengd fjörunnar á Seltjarnarnesi öllu, frá botni Fossvogs út fyrir Gróttu og inn í Elliðavog og Grafarvog er á að giska 25 til 30 kílómetrar. Núna blasir við að með ólíkindum er hvað lítið er eftir af þessari fjöru.  

Listakonan Ólðf Nordal segir á facebook síðu sinni að í ljósi sífelldra aðfara að fjörunni sé ljost að náttúran eigi sér engan málsvara, og það, hve lítið er orðið ósnortið eftir af henni, styður þau orð. 

Tvð nýjustu dæmin um endalausar aðfarir að fjörunni eru núna við myndverk Ólafar á Seltjarnarnesi og við Laugarnestanga þar sem verið er að sækja að fjörunni og svæðinu á þann hátt að loka með heilmikilli uppfyllingu fyrir útsýni þaðan til Viðeyjar og skerða fjöruna stórlega. 

Í viðtali um málið kemur fram af hálfu borgaryfirvalda hafi Landvernd verið færðar þakkir fyrir árverkni við ábendingar út af þessum framkvæmdum, en í fréttinni er líka upplýst um það að þegar sé búið að gera bindandi samning um flutning miðstöðvar Faxaflóahafna á hina nýju uppfyllingu! 

Sem sagt: Um leið og sagt er að tryggt að raðist verði gegn fjörunni er búið að tryggja að aðförin haldi áfram. 

Einu sinni var sett fram stefnan "virkja fyrst og friða svo". 

Enskumælandi þjóðir orða það þannig að "éta kökuna og eiga hana samt." 

 


mbl.is Náttúruspjöll á Seltjarnarnesi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 10. júlí 2020

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband