Heilmikið mál að "kópa við" "trendin", sem "trenda" 2022 á "háum leveli."

Dæmi um "trendin" sem nú komast á æ hærri "level" í íslenskri málnotkun má sjá í viðtengdri frétt á mbl.is um "heitustu eldhústrendin fyrir 2022" eins og það er kallað.

Þessi svonefndu "trend" í sókn enskunnar inn í íslenskt mál lauma sér víða inn, og hafa áður verið nefnd dæmi úr máli íþróttafréttamanna á borð við hina mjög svo misháu "levela" út um allar koppagrundir í íþróttunum, hina nýju sögn "að kópa við" og sögnin "að ranka" um það hve hátt afreksfólkar "rankar".  

Úr því mætti finna út eftirfarandi setningu, sem lýsi stöðu áskoranda nr. e9tt í þungavigt:

"Nú er spurningin "hvernig hann trendar á nýju ári og kópar við andstæðinga

á svona "háum leveli" sem "ranka" svona hátt þar sem heitustu boxtrendin eru."


mbl.is Heitustu eldhústrendin fyrir 2022
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 25. desember 2021

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband