Ekki of sigurvissir.

Íslenska landsliðinu í handbolta hefur oft gengið einna best þegar vonirnar hafa verið minnstar. 

Þannig var það 1961 við kepptum á heimsmeistaramóti og áttum þó ekkert boðlegt íþróttahús, heldur lékum í bragga sem var allt of lítill, - unnum þó fyrrum silfurlið Svía og vorum skammt frá því að fara í undanúrslit en lentum í 6. sæti.

Vonirnar voru miklar fyrir einum og hálfum áratug þegar við héldum heimsmeistarakeppnina sjálfir og vonbrigðin þeim mun meiri.

Á áttunda áratugnum sendum við sterkt lið til keppni í Austur-Þýskalandi, en liðsmenn fengu einhverja umgangspest og guldi afhroð. 

Vissulega er nauðsynlegt að stefna að sigri og hafa sjálfstraustið í lagi, en í ljósi reynslunnar held ég að rétt sé að varast of mikla siguvissu.

Enginn leikur mun vinnast fyrirhafnarlaust.  


mbl.is Allir klárir í slaginn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ursus

Serbar eru 7,5 milljónir. Við erum um 320 þúsund. Því hljóta þeir að vinna, er það ekki? Nei, bíðið við, við höfum unnið Kínverja í einhverju, er það ekki? Þeir eru fjórðungur alls mannkyns. Þetta verður létt á morgun!

Ursus, 18.1.2010 kl. 23:23

2 Smámynd: Ómar Ragnarsson

Vonandi. Vonandi hafa þeir ekki eytt of miklu púðri í marga og tíða æfingaleiki.

Ómar Ragnarsson, 19.1.2010 kl. 00:36

3 Smámynd: Ursus

Serbar eyddu öllu sínu púðri í að skjóta nágranna sína og fyrrum samlanda, og gerðu það með all nokkrum stæl.  Nú eru þeir púðurlausir, en komnir með handbolta í stað hríðskotariffilsins. Hvort fer þeim betur? Kemur í ljós á morgun!

Ursus, 19.1.2010 kl. 00:46

4 identicon

Áttu við 1964 í Innsbruck?

Ólafur Kristjánsson (IP-tala skráð) 19.1.2010 kl. 00:50

5 Smámynd: Sigurður Sveinsson

Ég vona að það sé komið að gullinu. Það er allt hægt ef allt gengur upp. Ég spái að við leikum til úrslita við frakka eins og á Ólympíuleikunum og að stríðsgæfan verði okkar megin.

Sigurður Sveinsson, 19.1.2010 kl. 08:11

6 Smámynd: Ómar Ragnarsson

Nei, ekki Innsbruck, heldur mót sem var af einhverjum ástæðum þremur árum fyrr. Þar áður kepptum við 1958 og urðum níundu.

Ómar Ragnarsson, 19.1.2010 kl. 09:47

7 identicon

Misminni hjá mér. Bratislava 1964 átti það að vera. Þá unnum við Svíana 12-10 í fyrsta sinn. Vona að ég fari rétt með!

Ólafur Kristjánsson (IP-tala skráð) 19.1.2010 kl. 13:12

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband