Til hvers eru sett skilyrði?

Þegar úrskurður umhverfisráðherra um mat á umhverfisáhrifum Kárahnjúkavirkjunar var kynntur 20. desember 2001 var þess getið leyfi fyrir virkjuninni hefði verið veitt gegn "20 ströngum skilyrðum."

Sum þeirra voru í raun einskis virði, svo sem það skilyrði að borun ganga undir Fljótsdalsheiði mætti ekki valda því að það færi að leka úr vötnum á heiðinni niður í göngin. Ef slíkur leki hefði farið af stað er vandséð hvernig hefði átt að stöðva hann. 

Annað skilyrði var marklaust, sem sé að ekki mætti raska merkilegum innskotshrygg í Valþjófsstaðafjalli sem væri aðeins 3 metra frá virkjuninni. 

Hið rétta er að þessi hryggur er 3 kílómetra frá virkjuninni.

Ég sé á bloggi að sumum finnst alger óþarfi að vera að fylgjast með því að settum skilyrðum hafi verið eða sé fylgt þegar hvort eð er búið að framkvæma allt það sem framkvæma átti.

Þá er hægt að spyrja á móti: Hvers vegna var þá verið að setja skilyrði?

Í ágætri bók um Blönduvirkjun er rakið hvernig Landsvirkjun komst upp með það á sínum tíma að uppfylla ekki öll loforð sín og skilyrði vegna þess að það sjónarmið var ríkjandi, að úr því að búið væri að framkvæma væri það bara sóun á tíma og peningum að ganga eftir slíku.

Um þetta gildir hin dásamlega setning, sem sögð var þegar látið var ógert að kanna með borunum 6-7 kílómetra áberandi misgengi, sem sást greinilega ofanfrá, en í því tafðist borun um meira en hálft ár og mátti litlu muna að þetta misgengi hefði gert alla framkvæmdina ónýta.

Sagt var: "Við ætluðum að fara þarna í gegn hvort eð var"  


mbl.is Landsvirkjun telur sig hafa uppfyllt skilyrðin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Þetta er pólitískur leikaraskapur hjá umhverfisráðherra. Landsvirkjun hefur gefið út með reglulegu millibili, áfangaskýrslur um þessi skilyrði, nú síðast í nóvember 2009, sjá HÉR

Fjöldi eftirlitsaðila kemur að því að þessum 20 skilyrðum sé framfylgt, m.a. frá umhverfisráðuneytinu.

Þetta er bara enn eitt bullið frá þeim sem hafa verið á móti þessum framkvæmdum. Rök bíta ekki á þetta fólk.

Gunnar Th. Gunnarsson, 1.4.2010 kl. 02:05

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband