Nýr forstjóri, ný stjórn, ný sýn.

Verð og eftirspurn eftir orku fer hækkandi í heiminum og því er eðlilegt að á þeim markaði sé tekið tillit til þess. Á þessu sviði er ástandið það sem kallað er "sellers market" á erlendu máli, markaður þar sem seljendur hafa sterkari stöðu en kaupendur.

Þegar Íslendingar fóru inn á þennan markað fyrir 40 árum tóku þeir upp stefnu, sem gilt hefur allt þar til nú, - að gera það að höfuðatriði að selja vöruna, jafnvel þótt það kostaði það að hún yrði seld á hlægilega lágu verði í stað þess að verðleggja hana í samræmi við verðmæti hennar. 

Best birtist þetta í hinum einstæða betlarabæklingi íslenskra stjórnvalda, sem Andri Snær Magnason varpaði hulunni af í bók sinni Framtíðarlandinu.

Kynningarbæklingur þessi var sendur til erlendra stórfyrirtækja 1995 með upphrópuninni: "Lægsta orkuverð !  Sveigjanlegt mat á umhverfisáhrifum!" 

Ég hlustaði á Hörð Arnarson tæta fjármálastefnu Landsvirkjunar í tætlur á fundi Viðskiptaráðs 2007. 

Mér leist því vel á það þegar hann var ráðinn forstjóri fyrirtækisins sem ný stjórn hafði tekið við stjórnartaumunum í. 

Ný stefna í verðlagningu á orkunni kallar líka á breytingu á vali kaupenda, sem rímar við eðli jarðvarmavirkjana. Þessi breyting þarf að verða í þá átt að hafa kaupendurna að orkunni fleiri og smærri í stað þess að setja alla orku heilla landshluta í hendur eins stórfyrirtækis og taka jafnvel með því áhættu af því að ekki finnist næg orka, heldur verði fyrir neyð að fórna enn meiri náttúruverðmætum en upphaflega stóð til. 

 


mbl.is Samið um orkusölu í Straumsvík
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

Þegar "Selllers market" er sem bestur, bíða bestu seljendurnir og sjá hvað "hinir" hafa að bjóða og á hvað þeir eru að kaupa. Gera ekkert, en gera einhverja vitleysu er betra en gera ekkert.?. Imbalógík, en dulítið til í þessu. Sósíalsistar munu hins vegar aldrei skilja þetta, enda á endastöð alls sem heitir "hugsjónir" , "loforð", "skjaldborg heimilanna". "Allt fyrir STÓLINN" og fegurðardrottning Þistilfjarðar og nágrennis, ásamt fyrrverandi flugfreyju og eilífðarauðvaldsandsyggðardrósar, sem ávallt gat eytt, en aldrei neitt greitt, . hefur afrekað að lokum ,að smyrja í boru einn ráðherrastól hjá EU..Sjaldan hefur verið farið eins illa með stafi Íslenska stafrósins og þá sem enn hafa ekki verið boðnir fram.

Halldór Egill Guðnason, 17.6.2010 kl. 03:58

2 identicon

Er bæklingurinn sem um ræðir sá sem á ensku lofaði "minimum environmental redtaping"? Ef það er það sem um er að ræða, þá er það ekkert sérstaklega sveigjanlegt, - það er áheit um að nánast hverskyns umhverfissóðaskapur verði umborinn.

ingunn (IP-tala skráð) 17.6.2010 kl. 09:06

3 Smámynd: Ómar Ragnarsson

Hárrétt, Ingunn, og hefði verið vitað um þennan bækling árið 2001 hefði verið algerlega fyrirsjáanlegt að Kárahnjúkavirkjun flygi í gegnum mat á umhverfisáhrifum eins og raunin varð þrátt fyrir mestu neikvæðu, óafturkræfu umhverfisspjöll sem möguleg eru á þessu landi.

Ómar Ragnarsson, 17.6.2010 kl. 22:49

4 Smámynd: Pétur Þorleifsson

Það var reyndar vitað um þennan bækling árið 2001.  Kannski ekki nógu margir vitað eða of margir verið sofandi. Hann var ræddur á Alþingi árið 1997.  Og útvarpserindi um daginn og veginn í útvarpinu var um hann árið 1998.

Pétur Þorleifsson , 18.6.2010 kl. 02:59

5 Smámynd: Gerður Pálma

Ég skil hreinlega ekki hvernig hægt er að tala um að fólk (ráðafólk) viti ekki hlutina, eða sé sofandi því björgum hefur verið velt af fólki eins og Ómari og hundruðum mótmælanda í landinu til vakningar á orsök og afleiðingu virkjana í landinu. 
Ráðamenn hafa hreinlega lokað fyrir samvisku og ábyrgðar ventlinn haldið fyrir eyrun og lokað augum. Það hefur verið mikið átak að frýja sig ábyrgð gegn landi og þjóð. 
ALLIR þekkja Ómar og hann hefur barist fyrir landið og okkur öll, flugfreyjur sem og aðra þjóðfélagsþegna.  Það er enginn sofandi, það lætur sig reka þangað sem græðgisveiran stýrir þeim.

Gerður Pálma, 18.6.2010 kl. 10:13

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband