9.9.2010 | 12:21
Borgarstjórans bersöglismál...
Borgarstjórans bersöglismál
blossa nú upp eins og hamfarir,
sem límdur við netið af lífi og sál
í losta að horfa á ....heimildarmyndir.
P. S. Ég heyri í útvarpsfréttum núna klukkan fjögur að borgarstjórinn segir að blaðamaðurinn hafi fellt út framhaldið af setningunni um netnotkunina.
Ég verð því að breyta ferskeytlunni í sexskeytlu, bragarform sem á afar vel við í þessu tilfelli ( vísa með sex línum) og er þetta gert til þess að vísan sé í sama dúr og viðtalið var samkvæmt lýsingu borgarstjórans.
Borgarstjórans bersöglismál
blossa nú upp sem hamfarir
með strók.
Sem límdur við netið af lífi og sál
í losta hann horfir á - heimildarmyndir, -
nei, djók !
Ætlar aldrei aftur til Brussel | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Þessi er góð Frumsamin?
Gunnar Th. Gunnarsson, 9.9.2010 kl. 14:42
Já, auðvitað.
Ómar Ragnarsson, 9.9.2010 kl. 14:53
Hvernig spyr ég
Gunnar Th. Gunnarsson, 9.9.2010 kl. 15:55
.... eins og fávís kona í barnsnauð
Gunnar Th. Gunnarsson, 9.9.2010 kl. 15:57
Góður! Nei, annars, bara djók!
Ómar Ragnarsson, 9.9.2010 kl. 16:12
Gunnar Th. Gunnarsson, 9.9.2010 kl. 16:28
Þetta var vel gert, og all vel kveðið.
Minnir mig á Kurt Vonnegut sem kom með kvæði í útvarpsþætti að ég held.
Roses are red
and ready for plucking
I'm sweet sixteen
and ready for....Highschool.
hehe
Jón Logi (IP-tala skráð) 9.9.2010 kl. 17:04
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.