Frb. 9365: "Kötturinn sagði: "ekki ég..." "

Sama fyrirbærið veldur því nú að umhverfismál þoka fyrir öðrum málum í forgangsröðinni, sem stjórnvöld landa heimsins setja sér í því sem brýnast er að gera.

Kreppan er notuð sem afsökun fyrir því að láta reka á reiðanum í þessum efnum, ekki hvað síst hér á landi, þar sem "brýnustu aðgerðir, sem fara þarf strax í," eru efst á blaði. 

Sagan um litlu gulu hænuna, eins sáraeinföld og þessi barnasaga er, er í fullu gildi á heimsvísu, landsvísu og allt niður í einstakar byggðir, einstaklinga og fjölskyldur. 


mbl.is Losun gróðurhúsalofttegunda aldrei meiri
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Heill og sæll Ómar; jafnan !

Á daginn er komið; að Ísland verður ekki búsetuhæft, fyrir venjulegt fólk, næstu 14 - 1500 árin, síðuhafi snjalli.

Því; getur þú, sem aðrir, sparað ykkur orkuna, sem fer í, að reyna að segja okkur annað.

Mugabe; Zimbabwe forseti, er virðingar verðari, en öll samanlögð íslenzka valda stéttin, ágæti drengur.

Með; öngvu að síður, beztu kveðjum, úr Árnesþingi /

Óskar Helgi Helgason 

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 25.11.2010 kl. 21:14

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband