Vændisbílskúrarnir.

Ósköp er nú orðinn klúr

sá útúrdúr

að dúfurnar fari allar úr 

úti´í skúr.  


mbl.is Vændisbílskúrar opna næsta sumar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Bergljót Gunnarsdóttir

Í stórum skúr, úr traustum múr,

stendur súr, karl á túr.

"Fínar frúr", sem syngja í dúr,

færðu hann úr, en fannst of klúr.

Bergljót Gunnarsdóttir, 28.11.2012 kl. 02:41

2 Smámynd: Þorsteinn Briem

Sjallar eiga skrítinn skúr,
sem sköklar fara í og úr,
upp'í Valhöll undrakúr,
allt að klukkutíma lúr.

Þorsteinn Briem, 28.11.2012 kl. 02:46

3 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Í steyptum skúr,

stendur raftur,

konu kind á túr.

Haltu kjafti aftur!

Sigurður Þórðarson, 28.11.2012 kl. 13:18

4 identicon

Alltaf gaman af svona orðbrögðum.

En hér er ein sem mér datt í hug..:

Að fara út í skúr

og fá sér smá lúr.

Án þess að vera eitthvað klúr,

Þá gætu þetta verið fínar frúr.

En þá verður konan voða súr

ef maður er ekki henni trúr,

þá er betra að fara bara í bíl-túr.

M.b.kv.

Sigurður Kristján Hjaltested (IP-tala skráð) 28.11.2012 kl. 17:01

5 identicon

greinilega skárra að vera klúr útí skúr

en að vinna í mcdonalds eða svizzbónus.

sveinn sigurður ólafsson (IP-tala skráð) 28.11.2012 kl. 20:15

6 identicon

Þú ert góður  í bílablogginu  Ómar . Hvaða bíl ætti maður sé að setja í bílskúrinn. Gamlan Wartburg eða nýjan BMW ? Svari hver fyrir sig.

hordur (IP-tala skráð) 29.11.2012 kl. 15:19

7 identicon

Sniðugt, þá getur maður fengið sér á broddinn og látið skiptu um bremsuklossa í leiðinni :)

maggi220 (IP-tala skráð) 29.11.2012 kl. 19:39

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband