Hverjir ættu að vera "reiðir og pirraðir"?

Það hefur komið fram þegar íslenskir og erlendir fjölmiðlamenn hafa farið að athuga fjárfestingar Huangs Nubos í öðrum löndum, að svo virðist sem aðal áhugi hans sé fólginn í því að eignast land, annað hvort með beinu eignarhaldi, eða með leigusamningum til langs tíma, en hins vegar hefur sú fjárfesting að öðru leyti, sem hann hefur sagst vera með í bígerð, látið standa á sér.

Nú segist hann vera "reiður og pirraður" yfir því hér á landi sé tekið mið af þessari reynslu erlendis, þar sem þeir, sem tóku hann trúanlegan, eru hins vegar "reiðir og pirraðir."

Nubo hefur gefið yfirlýsingar og upplýsingar sem hafa stangast á og hafa margar hverjar verið rangar.

Hverjir eru það sem ættu að vera "reiðir og pirraðir"?


mbl.is Huang: „Reiður og pirraður“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Við ættum að vera reið og pirruð útí þennan karl, sem bara útúðar Íslendingum.

Nei engir útlendingar í landið okkar til eignar !  Af hverju gildir það ekki sem alltaf hefur verið að "útlendingar" meiga ekki eiga eignarland á Íslandi ?  Af hverju erum við stolt af "Landi" okkar sem við eigum EKKI !!!!!

Vilhelmina Ragnarsdóttir (IP-tala skráð) 3.12.2012 kl. 16:44

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband