9.5.2013 | 00:00
Hjólaði daglega ofan af Hellisheiði í 9 ár.
Í níu ár samfleytt bjuggu hjónin Blómey Stefánsdóttir og Óskar Magnússon í næstum 400 metra hæð yfir sjávarmáli í litlum torbæ uppi á fjalli fyrir ofan Skíðaskálann í Hverdölum.
Óskar vann við Reykjavíkurhöfn og hjólaði 35 kílómetra leið til vinnu daglega, jafnt að vetri sem sumri.
Hann var þá kominn vel á sjötugsaldur en trúarhiti, eldmóður og reiði í garð þjóðfélagsins hélt honum gangandi.
Myndin af torfbænum er tekin seint í maí þegar jörð er búin að vera auð í meira en mánuð niðri við sjó.
Hann hafði áður byggt magnað hús í Blesugróf, sem kallað var "Kastalinn" en hafði þurfti að hrekjast úr því 1973 þegar Breiðholtsbraut var lögð þar.
Segja kunnáttumenn um arkitektúr og húsasmíði að Kastalinn hafi verið stórmerkilegt hús (Sjá mynd hér fyrir neðan)
Hann gerðist utangarðsmaður í mótmælaskyni í torfbænum litla sem hann reisti á fjallinu og þraukaði þar með konu sinni í heil níu ár við sérstaklega erfiðan kost þar sem vetrarríki og stórviðri ríktu líkt og á hálendi væri langt fram á sumar og stundum strax aftur í september.
Sagt er frá þessum einstæða "sérvitrningi" og einhverjum besta batik-listamann Íslands í bókinni "Mannlífsstiklur".
68 ára og hjólar allt árið í vinnu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
helvítis ríkið er alltaf að brjóta á einstaklingum og þessi saga er gott dæmi um það.Þessi maður var snillingur.Miklu klárari en allar silkihúfurnar sem brutu niður húsið hans.
dodds (IP-tala skráð) 9.5.2013 kl. 01:07
Mjög áhugavert viðatal Ómar, eins og flest annað sem þú grefur upp og sýnir okkur: http://www.mbl.is/greinasafn/grein/303396/
Ætli það finnist fleiri myndir af þessu merka húsi?
Arna (IP-tala skráð) 9.5.2013 kl. 08:50
Ég ferðaðist oft með Ferðafélagi Íslands og Útivist hér áður fyrr. Held að ég hafi það frá fararstjórum þeirra að Óskar hafi tvívegis byggt sér hús, áður en hann flutti upp á heiðina, og bæði húsin hafi orðið að víkja fyrir skipulaginu.
Gunnur S. Friðriksdóttir (IP-tala skráð) 9.5.2013 kl. 10:39
Jú, það eru til margar myndir af þessu sérstaka húsi, sem var eins og Ómar getur um alltaf kallað kastalinn. Þarna ræktuðu þau hjón allt mögulegt og voru líka með geitur og kalkúna, sem var mjög óvenjulegt.
En það var náttúrlega ekki Breiðholtsbraut, heldur Reykjanesbrautin, sem var lögð þarna í gegn og fjöldi húsa varð að víkja vegna þess.
Harpa J. Amin (IP-tala skráð) 9.5.2013 kl. 12:51
Gatan hét Breiðholtsbraut þegar hún var lögð og árin á eftir, því að framhaldið, Reykjanesbrautin, kom allmörgum árum síðar.
Ómar Ragnarsson, 9.5.2013 kl. 17:37
Óskar Magnússon (1915-1993) búfræðingur og síðar listvefari, byggði Kastalann í Blesugróf án tilskilinna byggingarleyfa.
Þegar Breiðholtsbrautin var lögð þurftu nokkur hús í Blesugróf að víkja, þar á meðal Kastalinn sem tekinn var eignarnámi af borgaryfirvöldum, en þar höfðu þau Óskar og eiginkona hans, Blómey Stefánsdóttir (1914-1997), búið í þrjá áratugi.
"Mér fannst kofinn ömurlegur alla tíð," sagði Blómey um Kastalann.
Óskar Magnússon reisti þá Garðstungu í Flengingarbrekku í Hveradölum undir Hellisheiði og þar bjuggu þau Blómey á árunum 1974-1984.
Rithöfundurinn Sigurður A. Magnússon var hálfbróðir Óskars Magnússonar og Blómey var amma Ásdísar Höllu Bragadóttur, bæjarstjóra Garðabæjar 2000-2005.
Sonur Óskars og Blómeyjar var Hallmar Stálöld (1941-1964) og Sigurður A. Magnússon segir frá honum í bók sinni Undir dagstjörnu.
Og Tryggvi Emilsson sagði frá fátæktarbasli Blesugrófarbúa í bók sinni Baráttan um brauðið.
Óskar vann sem hafnarverkamaður hjá Skipaútgerð ríkisins í Reykjavík og hélt miklar ræður um ágæti Stalíns.
"Ég var aldrei hrifin af þessum manni, aldrei," sagði Blómey um Óskar.
"Það var ekkert jafnrétti til í landinu, misrétti og ofríki karlmanna blasti alls staðar við. Þeir réðu öllu og áttu allt. Við hétum því að breyta þessu, ráða okkur sjálfar og láta ekki kúga okkur," sagði Blómey, sem var eina konan með þessu nafni en nú eru þær þrjár.
Kastalinn í Blesugróf og Garðstunga í Flengingarbrekku undir Hellisheiði - Frásögn og myndir
Þorsteinn Briem, 9.5.2013 kl. 19:26
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.