Ţúsundir kei-bíla á Íslandi í 37 ár.

Í frétt á mbl.is um svonefnda "kei"-smábíla í Japan er rangt fariđ međ ţađ ađ ţeir séu ađeins framleiddir fyrir japanskan markađ.

Japanskir kei-bílar hafa veriđ fluttir út frá Japan í fjóra áratugi, og síđustu 16 ár veriđ kei-bílar sem standast eftirfarandi kröfur veriđ á markađi í heimalandinu: Hámarkslengd: 3,40m, hámarksbreidd 1,48, hámarksrúmtak vélar 660 cc og hámarksafl vélar 64 hestöfl.

En fyrir erlendan markađ hafa Japanir framleitt kei-bíla međ hćgri- eđa vinstrhandanstýri, ýmist óbreytta eđa lítt breytta í nćr 40 ár og hér á landi hafa slíkir bílar veriđ allar götur frá ţví sá fyrsti, Suzuki SJ20 smájeppinn kom á markađ 1977 fyrir 37 árum. 

Sá jeppi stóđst afar harđar kröfur um kei-bíla:  Hámörkin voru 2,99 x. 1,30 m lengd og breidd og 360cc vél.

En til útflutnings voru ţessir jeppar fluttir međ 797 cc 37 hestafla fjórgengisvél og varadekkiđ var aftan á bílnum í stađ ţess ađ vera inni í bílnum eins og í Japan. 

1981 var búiđ ađ breyta reglunum í Japan og nú voru hámörkin: 3,20 x 1,40 lengd og breidd og 550 cc vél. En til útflutnings var bođin 970 cc 45 hestafla fjórgengisvél.

Fjöldi svona jeppa voru fluttir til Íslands og nokkrum árum síđar kom 1300 cc útgáfa 63ja hestafla útgáfa međ hćkkuđu ţaki og ţessir bílar er ennţá nokkur hundruđ í umferđ hér á landi.

Síđan voru brettakantar settir á Súkkurnar og öxlarnir lengdir, svo ađ breiddin varđ 1,46 m og nafninu var breytt úr Fox í Samurai.

Síđasta útgáfan undir nafninu Jimny kom 1998 ţegar kei-reglunum var breytt í ný hámörk: 3,40 x 1,48 lengd og breidd og 660 cc hámarksrúmtak vélar.

Til útflutnings var bćtt utan á bílana samfelldu plastlagi til ađ breikka bílinn upp í 1,60 og lengja hann í 1,60 og bođin 1300 vél međ meira en 80 hestöflum og ţeir bílar seljast vel enn í dag, jafnt hér á landi sem annars stađar.

Sama var gert viđ Daihatsu Terios kid og Mitshubishi Pajero Pinin. Terios var breikkađur úr 1,48 upp í 1,55 međ hvimleiđu "fitulagi" úr plasti, sem flestir hafa ryđgađ undir, og afturendinn á Terios var lengdur um 20 sentimetra.  

Hér er svo listi yfir kei-bíla, sem fluttir hafa veriđ inn hér á landi frá 1977 í réttri tímaröđ:

Suzuki SJ20

Suzuki Fox.

Suzuki Alto.

Subaru Rex.  

Suzuki Samurai.

Daihatsu Cuore.

Daihatsu Terios.

Mitsubishi Pajero Pinin.

Suzuki Jimny.   

Ţetta er myndarlegur listi, ţúsundir kei-bíla, sem  hafa veriđ fluttir hingađ til lands allt til dagsins í dag og eru hér enn í umferđ og enn í dag eru mörg hundruđJimny jeppar fluttir inn árlega.  

Ef menn telja ađ ný lög um opinber gjöld á bílum muni fćkka kei-bílum í Japan mun ţađ hafa miklar og slćmar afleiđingar fyrir umferđina í stórborgum ţess lands, ţví ađ tilvist ţessara bíla hefur veriđ grunnurinn ađ ţví ađ koma í veg fyrir algert umferđaröngţveiti í ţeim.

Ég hef áđur lýst ţví hvađ lengd bíl skiptir gríđarlegu miklu máli í ţví ađ losa um rými á götunum, minnka umferđarteppur, greiđa fyrir umferđ og minnka kostnađ viđ gerđ dýrra umferđarmannvirkja.

Bábiljan um öryggiđ afsannast best međ tilveru bíla eins og Fiat nýja 500, Volkswagen Up!/Skoda Citigo, Chevrolet Spark og Kia Picanto.

Toyota IQ er ađeins 2,99 metra langur og fćr fimm stjörnur og Smart, sem er ađeins 2,79 m langur gefur margfalt stćrri bílum ekkert eftir í öryggi.  

Á ţessum bílum sést ađ hćgt er ađ framleiđa bíla međ hámarksöryggi, 5 stjörnum, sem eru ađeins 3,50 metra langir og um 1,60 á breidd.  

Međ ţví ađ lengja kei-viđmiđin um ađeins 10 sentimetra í breidd og lengd , í 3,50 x 1,58, er hćgt ađ ná ţessum takmörkum.

Sjálfur lenti ég í ţví á kei-bíl, Daihatsu Cuore árgerđ 1999, ađ stórum amerískum bíl var ekiđ aftan á mig kyrrstćđan á 60 kílómetra hrađa, og stóđst Cuore-bíllinn ţann harđa árekstur afar vel án ţess ađ ég hlyti meiđsl af.

Ég ćtla ađ henda inn myndum af kei-bílum á facebook síđu mína ţegar fćri gefst kvöld.   

 

 

  

  


mbl.is Í stríđ gegn smábílum
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ég átti Samurai í allnokkur ár og ók honum vítt og breytt um Noreg, í heilt sumar, nú á ég gamlan Jimny, sem er ekinn nćstum 200 ţúsund km. og hefur m.a. ţvćlst međ mér um allar Fćreyjar í tvígang. Ég get stađfest og tek heilshugar undir ađ ţetta eru ótrúlega seigir bílar, ţćgilegir, komast nánast allt - og ekki síst: bila ákaflega sjaldan og eru almennt ódýrir í rekstri, ganga eins og klukka! Ég vissi raunar ekki um ţessa forsögu og bakgrunn sem ţú rekur hér, Ómar. Fróđlegt.

Beastu kveđjur,

Ţorgrímur Gestsson

Ţorgrímur Gestsson (IP-tala skráđ) 9.6.2014 kl. 20:44

2 Smámynd: Ómar Ragnarsson

Takk, Ţorgrímur. Núna eigum viđ hjónin sjö kei-bíla framleidd af Suzuki og Daihatsu, ţar af ţrjá á númerum. Allir nema einn eru orđnir fornbílar.  

Ómar Ragnarsson, 9.6.2014 kl. 20:47

3 identicon

Ek Terios '99 daglega. Bilar aldrei.

Einar (IP-tala skráđ) 9.6.2014 kl. 20:58

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband