Þrautskipulögð innrás inn í Evrópu?

Nú má sjá því hampað á netinu, og vitnað í forseta Tékklands, að flóttamannastraumurinn inn í Evrópu sé skipulögð innrás múslima til þess að taka völdin í álfunni.

Harla óvenjuleg verður sú birtingarmynd hennar sem blasir við á ströndum grísku eyjanna þar sem flóttafólkið berst drukknandi fyrir lífi sínu.

Sérkennileg er líka "skipuleg innrás" þar sem meira en 90 prósent innásarhersins er á flótta á milli múslimskra landa sunnan Miðjarðarhafsins.

Þegar gluggað er í bók Páls Baldvins Baldvinssonar um stríðsárin og aðrar heimildir frá þeim tíma blasir við kunnuglegt orðalag um flóttamannastraum þess tíma, sem teygði anga sína til Íslands.

Í honum sáu menn lymskulega ógn Gyðinga við hinn "hreina kynstofn og þjóðerni Íslendinga".

Taka má margar setningar og heilu greinarnar og skipta út orðunum Gyðingar og setja inn orðið múslimar í staðinn, og yrðu þær þá fyllilega nothæfar í umræðuna í dag.

Það tókst að hrinda meintri innrás Gyðinga inn í landið að stórum hluta á árunum 1938-40, enda talið að með því að drepa Krist og trúa bara á Gamla testamentið en ekki á Nýja testamentið, kenningar Jesú um kærleikann, mannúð hans, mildi og umburðarlyndi, færðu Gyðingar inn í landið varasöm trúarbrögð framandi og foneskjulegs menningarheims fólks, sem væri ógn við íslenskt þjóðerni og hinn hreina norræna kynstofn.   

  


mbl.is Heyrðu öskur fólksins í sjónum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ómar Biedermann Ragnarsson er klár með eldspýturnar :(

https://www.youtube.com/watch?v=httuzNQ7qDM&feature=youtu.be

Hilmar Hafsteinsson (IP-tala skráð) 27.12.2015 kl. 23:13

2 identicon

Æ, hér virðist skammt öfganna á milli!

En hér er saga um það hvaða afleiðingar útlendingahatur geta haft í för með sér.

Fyrir meira en hálfri öld stormuðu nokkrir ungir menn í grænum úlpum inn á krá í erlendri borg. Við fatahengið stóðu nokkrir menn og veltu því fyrir sér hvaðan þessir menn kæmu, en þeir voru háværir mjög og töluðu mál sem enginn þekkti. Daman í fatahenginu var glögg á tungumál og giskaði á að þetta væru norðurlandabúar. Þá hrópaði einn viðstaddra til aðkomumanna: "ég þoli ekki Normenn, eruð þið Normenn"?

Til að gera langa sögu stutta þá hófust slagsmál á milli innfæddra og aðkomumanna sem enduðu með því að einn þeirra særðist svo að úr blæddi. Fór þá daman í fatahenginu að stumra yfir honum.

Til að gera enn lengri sögu enn styttri þá kom þessi stúlkan með þessum unga manni til Íslands og hefur verið hér síðan.

Hörður Þormar (IP-tala skráð) 28.12.2015 kl. 01:00

3 identicon

Við eigum víst að trúa því að Ómari Ragnarssyni og öðrum vinstrimönnum sé sérstaklega umhugað um gyðinga. Á sama tíma tala þeir af hitasóttalegri ákefð um ofsóknir gegn múslimum, hvers helsta áhugamál er að ofsækja og drepa gyðinga.

Gyðingar í Evrópu hræðast mjög aukinn innflutning múslima til Evrópu. Þeir verða í síauknum mæli fyrir ofsóknum, aðkasti og árásum af hendi múslima, og er sívaxandi straumur gyðinga á flótta frá Evrópu til Ísrael.

Ég held að Ómar Ragnarsson ætti að sýna gyðingum þá lágmarksvirðingu, að hætta að nota gyðingofsóknir til varnar þeim sem standa fyrir gyðingaofsóknum.

Hilmar (IP-tala skráð) 28.12.2015 kl. 03:47

4 identicon

En hvar hefur kærleikurinn, mannúð Jesú "ef hann var yfirleitt til", mildi og umburðarlyndi verið innan kirkjunar ?

Allavega lítið umburðalyndi

Björn J. Guðjohnsen (IP-tala skráð) 28.12.2015 kl. 17:56

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband