Eitt versta dæmið um ofurvald olíuauðsins.

Allur heimurinn veit að í Sádi-Arabíu ríkir einhver forneskjulegasta og versta einræðis- og kúgunarstjórn sem um getur á síðari tímum.

Firrt og gerspillt auðfjölskylda.

Kannski er það aðeins stjórn Norður-Kóreu, sem er verri.

Þetta viðgengst vegna þess að Sádi-Arabía er lang öflugasta olíuútflutningsland heims og getur í krafti þess öðrum fremur ráðið ferðinni í heimsviðskiptum með þennan orkugjafa sem efur verið og er enn mesti áhrifavaldurinn í efnahags- og stjórnmálum heimsins.

Máttlaus andmæli hafa ekki minnstu áhrif á valdsherra sem hafa öll stórveldin í vasanum og eru auk þess nánustu bandamenn eina risaveldisins. 

Hella nú olíu á eld óróans í Miðausturlöndum og eiga nóg af olíu til þess.

 


mbl.is „Munum láta jörðina skjálfa“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þorsteinn Briem

Auðvitað vill Donald Trump að Bandaríkin hætti að eiga samskipti við múslímaríkið Sádi-Arabíu og banna 1,7 milljörðum múslíma, um fjórðungi mannkynsins, að koma til Bandaríkjanna.

Öll múslímaríkin í heiminum, um sextíu, myndu þá væntanlega banna öllum Bandaríkjamönnum að koma til þeirra ríkja og hætta öllum samskiptum við Bandaríkin.

Þorsteinn Briem, 2.1.2016 kl. 23:25

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband