Eru "einhverjir úr hópunum" sama og allir í hópunum?

Neyðarfundur hefur verið haldinn hjá lögreglunni í Köln í Þýskalandi vegna að svo virðist sem skipulagðar hópárásir hafi verið gerðar á minnst 80 konur á nýársnótt í Köln og Hamborg.

Þúsund karlmenn stóðu að þessum árásum.

Er þetta nýtt fyrirbrigði og stóralvarlegt mál sem Þjóðverjar ætla að taka föstum tökum.

BBC hafði eftir lögreglustjóranum í Köln að árásarmennirnir væru af arabískum og norðuraafrískum uppruna.

Sjá mátti í bloggi um þetta að múslimatrúar hælisleitendur stæðu að þessu.

Er það að sjálfsögðu stóralvarleg hlið á flóttamannavandanum ef hælisleitendur fara um eins og úlfahjarðir með ránum og ofbeldi gegn konum á dæmalausan hátt.

Í tengdri frétt um málið á mbl.is segir að "einhverjir af" þessum árásarmönnum hafi verið hælisleitendur, en af fyrrnefndu bloggi um málið má ráða að ekki þurfi frekar vitnanna við,- þetta hafi verið flóttamenn.

Orðrétt hefst bloggpistill um þetta svona: "Flóttamenn frá Miðausturlöndum og Norðurafríku eru gerendur...."

Ekki minnst á hvort nokkrir aðrir hefðu verið gerendur.

   


mbl.is Hópárás í Köln vekur óhug
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

þetta eru tveir gjörólíkir menningarheimar, sem eiga enga samleið, og hafa aldrei gert, og munu aldrei gera, t.d. er í Stjórnarskránni 65.gr ákvæði um janrétti kynjanna, sem er ekki hjá þessum trúarbrögðum, karlar eifaldlega rétthærri en konur. Þetta er næg ástæða fyrir því að Íslendingar eiga að stíga mjög varlega til jarðar í innflitjendamálum.

Jón Ólafur (IP-tala skráð) 5.1.2016 kl. 19:33

2 identicon

Var nokkur nayðarfundur hjá lögreglunni í Vestmannaeyjum á síðustu þjóðhátíð?

Haukur Kristinsson (IP-tala skráð) 5.1.2016 kl. 19:45

3 identicon

Það hafa nú ekki borist fréttir af skipulögðum hópárásum í Vestmannaeyjum frá 1627.

Elín Sigurðardóttir (IP-tala skráð) 5.1.2016 kl. 19:50

4 identicon

Huffington post í Þýskalandi sakar lögregluna og fjölmiðla um að þegja um staðreyndir málsins, í þágu "almannareglu"

http://www.huffingtonpost.de/anabel-schunke/koeln-sexuelle-uebergriffe-medienversagen_b_8911050.html

Jamm, það þarf víst að þegja um hina dásamlegu fjölmenningu.

Hilmar (IP-tala skráð) 5.1.2016 kl. 20:10

5 Smámynd: Hrólfur Þ Hraundal

Svo virðist sem helst ekki megi segja frá afbrotum innflytjenda í Þýskalandi og Svíþjóð.  Vilji til svipaðrar stefnu virðist vera hér.

Hrólfur Þ Hraundal, 5.1.2016 kl. 22:33

6 identicon

Eins og kemur reyndar fram í aths. 3 og 4 þá
er það lögreglan ein sem veit ekki hverjir voru
þarna á ferð en allir aðrir vissu það enda ekki
auðvelt að komast hjá því.

Af öllum fréttum að dæma í þýzkum fjölmiðlum
höfðu menn vendilega skipulagt árásir þessar
enda skjótir að skipta um flíkur og koma sér á brott
til að villa um fyrir þolendum og þekkjast síður.

Ljóst er að ekkert verður aðhafst í þessum málum
og jafnljóst að tilfellum sem þessum mun fjölga
mjög á árinu og þau stigmagnast.

Flökku- og flóttamenn þurfa ekki að óttast aðgerðir
yfirvalda því smámunir á borð við nauðgun dugar þar ekki til
heldur morð eða ígildi þess.

Húsari. (IP-tala skráð) 6.1.2016 kl. 00:38

7 identicon

Það getur nú stundum verið gott að draga andann aðeins áður en farið er af stað með látum.

Í fréttum danska ríkisútvarpsins í dag, þar sem farið er betur yfir hvað gerðist, kemur fram að gerendur voru "2-20 saman", að 1000 manns alls hafi verið saman komnir á torginu, og að rökstuddur grunur leiki á, að gerendurnir séu úr lókal afbrotagengi. Vissulega eru einhverjir þeirra sagðir vera af norðurafrískum ættum, en eins líklegt er að flestir þeirra séu innfæddir þjóðverjar (þar sem flóttafólk hefur komið til Þýskalands frá Norður-Afríku í marga áratugi).

Hér er hlekkur á fréttina: http://www.dr.dk/nyheder/udland/koeln-borgmester-indkalder-til-krisemoede-efter-90-angreb-mod-kvinder-nytaarsaften

Skammist ykkar svo að láta undan móðursýkinni!

Vigfús Eiríksson (IP-tala skráð) 6.1.2016 kl. 14:10

8 identicon

Móðursjúkar konur fara af stað með látum og mótmæla árásum í Köln.  Eiga þær ekki bara að skammast sín og halda kjafti Vigfús?

http://www.ruv.is/frett/motmaeltu-arasum-i-koln

Elín Sigurðardóttir (IP-tala skráð) 6.1.2016 kl. 14:32

9 identicon

 Hvaða vitleysa, Elín Sigurðardóttir. Það er enginn að efast um að brotið hafi verið á konunum. Þær hafa fullan rétt á að láta í sér heyra.

Það sem hefur sýnt sig að vera rakalaus þvættingur, er að gerendurnir hafi verið 1000 talsins og upp til hópa flóttamenn. Hið rétta er að þeir voru líklega alls rúmlega 20, og meðlimir í glæpagengi sem hefur verið til vandræða í Köln í mörg ár. Ekkert er vitað um hvort þeir eru innflytjendur eða innfæddir Þjóðverjar, þótt þeir séu af Norður-Afrískum ættum. Og það er skammarlegt að fólk og fjölmiðlar vaði af stað með svona þvaður að óathuguðu máli.

Vigfús Eiríksson (IP-tala skráð) 6.1.2016 kl. 14:52

10 identicon

Mér finnst skammarlegt að fólk hrökkvi í vörn fyrir árásarmennina en ekki konurnar sem urðu fyrir árásunum. 

Elín Sigurðardóttir (IP-tala skráð) 6.1.2016 kl. 21:46

11 identicon

Vigfús neitar ekki að þetta séu innflytjendur, heldur meinar hann, væntanlega, að þarna sé um aðra kynslóð að ræða af aröbum og N-Afríku múslimum, sem þegar eru fyrir, eins og t.d. á norðurlöndunum.

Þetta eru staðreyndirnar sem varað hefur verið við í áratugi og eins og bent er á hér á blogginu,(1)þá borgar siga að stíga varlega til jarðar í innflytjendamálum.

Valdimar Jóhannsson (IP-tala skráð) 6.1.2016 kl. 23:17

12 identicon

Það sem ég (og fleiri, sem betur fer) er að gera alvarlega athugasemd við, er að í upphafi átti að klína þessum verknaði - sem er alvarlegur og ógeðfelldur, sama hvort þar eiga í hlut færri eða fleiri gerendur - á blásaklausa hælisleitendur.

Gerendurnir eru sagðir dökkir á hörund. Það getur vissulega þýtt að þeir séu innflytjendur (sem er ekki það sama og hælisleitendur). Það getur líka þýtt að þeir séu fæddir og uppaldir í Þýskalandi og séu börn, barnabörn eða barnabarnabörn innflytjenda, og væntanlega er það reyndin um góðan hluta hópsins.

Hörundslitur þeirra og þjóðerni kemur hinsvegar sjálfu málinu afskaplega lítið við. Aðalatriðið er, að þetta eru glæpamenn, sem ber að refsa. Sama hvaðan þeir koma, eða hvernig þeir eru á litinn. Það, að vísa í uppruna, hörundslit eða trúarbrögð, færir athyglina frá kjarna málsins, sem er glæpurinn sem framinn var, og fórnarlömbin sem fyrir honum urðu.

Ég vona innilega að fólk átti sig á þessu.

Vigfús Eiríksson (IP-tala skráð) 7.1.2016 kl. 10:05

13 identicon

Þú hefur engar áhyggjur af konunum.  Ég átta mig alveg fyllilega á því.

Elín Sigurðardóttir (IP-tala skráð) 7.1.2016 kl. 11:30

14 identicon

Elín, þegar ég segi að kjarni málsins sé glæpurinn og fórnarlömbin (þ.e. konurnar), færðu þá út að ég segi að þær skipti engu máli?

Það er nefnilega það. Lifðu heil.

Vigfús Eiríksson (IP-tala skráð) 7.1.2016 kl. 15:51

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband