Martröð tveggja ríkja með drauma um stórveldisdýrð.

Eftir lok Kalda stríðsins og hrun Sovétríkjanna tók við upplausnarástand í fyrrum risaveldi kommúnismans. Þrátt fyrir óviðráðanlega galla þessa kúgunarkerfis hafði heilbrigðiskerfið virkað einna skást inni í því. 

Jafnt aðgengi að því fyrir sem flesta hafði híft lífslíkur upp, þótt landlægt áfengisböl kæmi í veg fyrir að meðalævin yrði eins löng og hjá þeim vestrænu þjóðum sem komust lengst í láta blandað velferðarhagkerfi dafna. 

Óskilvirkt efnahagskerfi kommúnismans hrundi og leiddi af sér vaxandi spillingu, ójöfnuð og skort, sem lækkaði lífslíkur Rússa jafnt og þétt, enda versnaði áfengisbölið ef eitthvað var. 

Draumur Vladimirs Pútíns um endurreisn dýrðar stórveldisins Rússlands hefur að vísu endurreist getu herafla landsins að hluta, en efnahagskerfið sjálft er einhæft og margfalt minna en eðlilegt er. 

Donald Trump lyftist til valda á svipuðum forsendum, í krafti draums um endurreisn fyrri "dýrðar hinna voldugu Bandaríkja." 

Hin fyrri dýrð byggist á fortíðarhyggju, trúnni á hinn takmarkalausa hagvöxt efsta stigs neysluhyggjunnar sem þjóðir heims eiga eftir að fá í bakið þegar líður á þessa öld. 

Hluti af þessari dýrð felst í því að eyðileggja þann vísi að velferðarkerfi, sem fólst í Obamacare, og færa það fé, sem "sparaðist" við að minnka útgjöld til þess, yfir í skattalækkanir til þeirra sem betur væru megandi, auka útgjöld til hermála og aflétta eftirliti og auka frelsi gróðaafla, sem láta afleiðingar gerða sinna sig engu varða. 

Liður í því var til dæmis það að nota hæstarétt, sem er kominn með hægri slagsíðu eftir að Republikana forsetarnir Reagan og Bushfeðgar settu þar inn sína menn, til aflétta hömlum á því að fjársterkir aðilar gætu keypt sér stuðning þingmanna með því að fjárframlög til þeirra væru ekki háð neinum takmörkunum. 

Afleiðingarnar láta ekki á sér standa. Spilltir þingmenn, studdir af ópíumiðnaðinum, hafa komið í gegn lagabreytingum sem lamar lyfjaeftirlit Bandaríkjanna svo mjög, að læknadóp og aðrir fíkniefnastraumar leika að mestu lausum hala og hafa þegar skrúfað upp dánartíðni af áður óþekktri stærð meðal fólks á öllum aldri. 

Með því að lama Obamacare mun ótímabærum dauðsföllum fjölga á ný, en áætlað hefur verið að tvær milljónir Bandaríkjamanna deyi um aldur fram árlega vegna þess að þeir verða sviptir möguleikum á að leita læknisþjónustu. 

Merkilegt er að sjá hve margir dá og dýrka þessa endurheimtu dýrð ofurkapítalismans, sem er knúin áfram af spillingu, skammtímagræðgi og rányrkju. 

A sama tíma og Trump rökstyður fjandskap við Mexíkóa og byggingu risavaxins múrs á landamærum BNA og Mexíkó með því að fíkniefni streymi frá Mexíkó, er sett í gang ástand innan Bandaríkjanna sem stóreykur eftirspurn eftir þessum fíkniefnum. 

En eins og sanntrúaðir kapítalistar og auðhyggjumenn ættu að vita, er engin leið að hefta framboð, ef eftirspurnin er langt umfram framboðið. 

Með fjandskapnum við Mexíkó er verið að hengja bakara fyrir smið, allt í krafti ofurtrúar á dýrð hinnar óheftu og skammsýnu gróðahyggju, sem nú er ætlunin að láta knýja upp endurvakta stórveldisdýrð og "hernaðarlega og efnahagslega yfirburði" Bandaríkjanna. 

Sem verði meðal annars notaðir gegn vaxandi hernaðarmætti Rússlands og Kína, en í Rússlandi er það þrá Pútíns eftir fyrrum dýrð og veldi Rússlands, sem knýr hernaðaruppbyggingu hans áfram. 

Liður í endurvakningu fyrri "dýrðar hinnar voldugu Ameríku" er að endurvekja störf vestra sem hafa orðið úrelt vegna tækniframfara, og skapa atvinnu í einhliða afturhvarfi þessara starfa og verndartolla í boði helstu ráðgjafa og samstarfsmanna Trumps, sem koma úr röðum olíuframleiðenda, kolaframleiðenda og annarra forsvarsmanna mestu rányrkju, sem mannkynssagan kann frá að greina. 

Það er táknrænt fyrir þröngsýni Trumps, að hann umgengst næstu amerísku nágranna sína nánast eins og þeir búi í annarri heimsálfu. Hjá honum á orðfærið "We Americans" á aðeins við um Bandaríkjamenn. 

Nú er hann búinn að bæta því á syndalistann í minnisbók sinni, svo að í minnum verði haft, að Kanada studdi hann ekki í Jérúsalemsmálinu.  

Vaxandi auðræði og keppni í því að ganga sem harðast að takmörkuðum auðlindum jarðar er svo mikil, að aukinn ójöfnuður og minni lífslíkur eru léttvæg fundin af þeim, sem vilja feta gamalkunna braut úlfúðar og átaka þjóða heims, sem náði flugi í kreppunni miklu fyrir tæpum 90 árum, en kreppan sú var eingöngu af mannavöldum og átti upptök sín í "dýrð hinnar voldugu Ameríku."  

Sóun mannslífa ætti að vera martröð fyrir þá sem þrá framfarir. En hjá Trump og Pútín verður það ekki raunin. Draumar um hráa hernaðarlega og efnahagslega dýrð stórkapítalsins eru látnir hafa forgang.   

 


mbl.is Lífslíkur Bandaríkjamanna lækka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon



41 Funny Animal Pictures

Húsari. (IP-tala skráð) 23.12.2017 kl. 17:50

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband