3.2.2018 | 01:30
Sígur á ógæfuhliðina hjá réttarríki lýðræðis.
Eftir að Íslendingar gerðust aðilar að Mannréttindadómstólnum í Strassborg, hefur Hæstiréttur Íslands verið margsinnis, bráðum tíu sinnum, verið rassskelltur af dómstólnum.
Mannréttindi og sjálfstæði fjölmiðla eru hornsteinar lýðræðisins, en sífellt bætast við dómar og úrskurðir, sem lækka einkunn Íslands í þessum efnum.
Þótt Hæstiréttur og einstakir héraðsdómarar hafi of oft verið of þýlyndur við valdaöfl, svo sem í stjórnlagaþingkosningamálinu, geta einstakir sýslumenn þó gengið það langt í rangsleitni, að dómstólar setji ofan í við þá.
Úrskurður sýslumanns í lögbannsmáli Glitnis var einfaldlega svo augljóslega rangur, að það hefði verið nýtt met að endemum, ef honum hefði ekki verið hrundið.
Lögbannið er því miður ekki í eina skiptið sem úrskurðir af því tagi sem sýslumaður felldi og veikja trúna á íslensku réttarfari og íslensku lýðræði.
En verst er, að langvinnur málarekstur þjónar þeim aðila málsins, sem síst ætti að hagnast á hinu eindæma rangláta lögbanni.
Fólkið í landinu sem tapar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.