22.8.2019 | 17:35
Þrefalt hættulegra að vera undir áhrifum á vélhjóli en bíl.
Ölvaður maður á hjóli, einkum vélhjóli, er í þrefalt meiri hættu að verða sér að aldurtila en ef hann væri undir stýri á bil.
Ástæðan blasir við og maðurinn á reiðhjólinu í frétt á mbl.is, blóðugur eftir árekstur við ljósastaur, strax í upphafi ferðar, er ágætt dæmi.
Ef hann hefði sest upp í bíl og ekið á næsta ljósastaur, hefði belgur blásist upp fyrir framan hann og verndað hann.
Auk þess er margfalt erfiðara að halda jafnvægi og stjórn á hjóli en bíl.
Hjálmleysi og akstur undir áhrifum á vélhjóli eru orsakir meiri hluta banaslysa á þeim, þannig að ef þetta tvennt er í lagi, hjálmur og að vera edrú, er hættan á banaslysi orðin svipuð á þessum tveimur tegundum ökutækja.
Ofurölvi á reiðhjóli auk fleiri brota | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Ég hef nú stundum verið svo drukkinn að ég hef átt í erfiðleikum með að halda mér uppréttum . Og hvað þá á hjóli ? Veit að þú kannast ekki við þetta.
Jósef Smári Ásmundsson (IP-tala skráð) 22.8.2019 kl. 19:58
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.