15.1.2020 | 16:47
Ungverjar rassskelltu fyrst íslenskt gullaldarlið fyrir 56 árum.
Í fyrsta skiptið, sem Íslendingar vöktu fyrst verulega athygli á sér fyrir handboltalandslið á stórmóti, með því að vinna silfurlið Svía óvænt og eiga góða von að komast á verðlaunapall, sýndust Ungverjar, sem næst léku við Íslands næsta auðveld bráð.
En það fór á aðra lund. Ungverjar sigruðu með og hreinlega rassskeltu íslenska liðið, sem sá aldrei til sólar í leiknum.
Ef við vinnum Ungverja núna, erum við ekki aðeins að hefna fyrir ófarir gegn þeim á þessari öld, heldur líka fyrir fyrstu stóru vonbrigðin í íslenska handboltaævintýrinu, sem hófst fyrir 56 árum.
P. S. Leiknum lokið með beiskum íslenskum ósigri. En Gumma tókst þó að efna það loforð að koma liðinu upp í milliriðil.
Sannfærður um að Guðmundur spilar til sigurs | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.