4.3.2020 | 20:20
Eins konar risa Dyrhólaey í skýjunum.
Í ljósaskiptunum um klukkan hálf átta í kvöld tók risastór skýjabakki lengst vestur á Faxaflóa á því að búa til risaklakk, sem tók á sig mynd eins konar Dyrhólaeyjar úr skýjum með risastóru gati, sem þó náði ekki niður í sjó.
Erfitt var að átta sig á hæð þessa fyrirbæris, en kannski hægt að giska á 3000 metra hæð, tvo Snæfellsjökla hið minnsta.
Myndirnar tvær voru teknar af fyrirbærinu, sem hvarf síðan á um það bil stundarfjórðungi.
Án þess að við því yrði spornað blasti verslun Bonus við Spöngina svo vel við á neðri myndinni, að halda mætti að þetta hefði komið svona fram sem auglýsing fyrir verslunina.
En sú var auðvitað alls ekki hugsunin.
Athugasemdir
Þetta var ansi voldugt að sjá.
Sveinn R. Pálsson, 5.3.2020 kl. 07:06
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.