Enginn er óhultur.

Jarðarbúar skiptast nú í þrjá hópa; þá sem hafa fengið kórónaveiruna, þá sem eru í hættu á að fá hana og þá sem munu fá hana. 

Enginn er lengur óhultur fyrir því að fá veikina eins og listi yfir heilbrigðisráðherra og aðra ráðherra í ýmsum löndum sýnir. 

Viðspyrnan beinist nú að því um allan heim að sem fæstir fái þessa pest.  


mbl.is Skilgreina nánast allan heiminn sem „gult svæði“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þorsteinn Siglaugsson

Miðað við loftbrúna frá sýktustu svæðum Evrópu virðist nú áherslan frekar hafa verið á að koma pestinni eins hratt og örugglega í útbreiðslu hér og hægt er.

Þorsteinn Siglaugsson, 11.3.2020 kl. 12:30

2 Smámynd: Halldór Jónsson

Það er mogunljóst Þorsteinn að okkar yfirvöld eru frekar slöpp í vörninni

Halldór Jónsson, 11.3.2020 kl. 14:57

3 Smámynd: Guðmundur Jónsson

Engin er óhultur ?? 

Allt venjulegt fólk með sæmilega heilsu er óhult.

Guðmundur Jónsson, 11.3.2020 kl. 16:16

4 Smámynd: Ómar Geirsson

Þetta er eins rangt og nefið þitt nær Guðmundur, og það á eiginlega ekki að vera hægt miðað við lengd þess.

"Italy’s “patient one,” an otherwise healthy 38-year-old who fell ill with the virus in January, is now breathing on his own, after nearly three weeks on a respirator.".

Þegar of margir smitast, þá er ekki lengur hægt að veita sjúku fólki þá hjálp sem dugar, það er hinn bitri raunveruleiki sem Ítalir upplifa í dag, en Kínverjum tókst að hindra, annars vegar með því að bregðast nógu harkalega við og hindra útbreiðslu vírussins sem og með því að beina öllum kröftum heilbrigðiskerfisins til svæða í sóttkví.  Það mátti samt ekki miklu muna.

Síðan er það viss bilun að láta það út úr sér að sæmilega heilbrigt fólk sé óhult, þetta hefði jafnvel þótt gróft í Þýskalandi á fjórða áratugnum, og þar var ekki alltat verið að kalla á ömmu sína.

Þú ert eiginlega ótrúlegur.

Kveðja að austan.

Ómar Geirsson, 11.3.2020 kl. 16:40

5 Smámynd: Þorsteinn Siglaugsson

Það er rétt hjá Guðmundi að heilbrigt fólk á besta aldri er í lítilli hættu. Auðvitað eru undantekningar til, en þær kollvarpa ekki þessari niðurstöðu.

Þorsteinn Siglaugsson, 11.3.2020 kl. 20:16

6 Smámynd: Ómar Geirsson

Nei því miður ekki Þorsteinn, tilvitnun mín er tekin úr frétt frá því í gær, fullfrískt fólk er að veikjast og það er aðeins ein skýring á því að það er á lífi, súrefnisgjöf. 

Sem er takmörkuð.

En við trúum kannski ekki fréttum á útlensku, en þetta má lesa núna áðan á K-100, haft eftir ungri konu í námi í Mílanó.

" Það er fólk á mínum aldri sem er mjög veikt núna inni á spítala. Það er ekki nógu mikið pláss fyrir alla. Starfsfólkið á spítölum er komið á þann stað að það þarf að velja hver fær að lifa og hver að deyja.“ ".

Þetta er napur raunveruleiki.

Kveðja að austan.

Ómar Geirsson, 11.3.2020 kl. 21:38

7 identicon

Samkv. þýskum fréttum er farið að bera á skorti á ýmsum lyfjum þar í landi. Þau eru nefnilega framleidd í Kína.

Er "glóbalíseringin" kannski komin út í öfgar?

Hörður Þormar (IP-tala skráð) 11.3.2020 kl. 22:05

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband