29.6.2021 | 23:07
"Ég skil ekkert í því hvernig henni gat dottið þetta í hug..."
Fyrir tæpum fimmtíu árum féll heilmikil aurskriða úr brekkunni ofan við Lund í Lundarreykjadal og vakt furðu, hve stór og öflug hún var.
Þegar fréttastofa Sjónvarpsins hafði samband við Sigurð Þórarinsson jarðfræðing til þess að leita skýringar á þessu falli aurskriðunnar:
"Ég get því miður ekkert sagt um þetta, því að ég skil ekkert í því hvernig henni gat dottið þetta í hug."
Þar með var þetta atvik útrætt.
Þess má geta að snjóflóð féll nyrst í Blönduósbæ 1993 ef rétt er munað.
Engin nákvæm skýring fékkst á því hvernig því gat dottið þetta í hug, en minna má á orð norsks sérfræðings un jnjóflóð: "Þar sem landi hallar og snjór getur fallið, geta fallið snjóflóð."
Enginn slasaðist í aurskriðu í Varmahlíð | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.