Ljómi Berutti og Mennea lifnar við.

Veldi bandarískra spretthlaupara hefur verið meira og minna víð lýði í þrá aldarfjörðunga og birst hvað eftir annað í 4x100 metra boðhlaupinu. 

Nú bregður svo við að þeir eiga ekki einu sinni þátttökusveit í 4x100 metra boðhlaupinu og verða í staðinn að horfa upp á endurlífgun fornrar frægrar ítalskra spretthlaupara, sem birtist skærast í frammistöðu Livio Berutti í upphafi sjöunda áratugarins. 

Síðan skein stjarna Peto Mennea enn skærar á áttunda áratugnum, og má sem dæmi nefna, að hinn stórkostlegi sigurtími í 200 metra hlaupinu á Ólympíuleikunum núna var þrátt fyrir allt  aðeins 0,1 sekúndu lakari en heimsmet Mennea var 40 árum. 

Það er ekki sjálfgefið að boðhlaupið vinnist hjá þeim sem hefur bestu 100 metra hlauparana, því að í hverri boðhlaupssveit er aðeins einn af þremur í sveitinni, sem byggir framlag sitt í formi getu í starti og fyrri hluta 100 metra hlaups. 

Hinir þrír sprettirnir byggjast oft á hraðagetu í 200 metra hlaupi, og á á blómatímum ítalskra spretthlaupara fyrr á tíð væri dæmi um báðar týpurnar. 

Berutti og Mennea voru báðir afar léttir og frekar lágir hlaupararar.  Báðir voru um 1,80 m á hæð, Berutti aðeins 66 kíló en Mennea rúmlega 70. 

Á Ólympíuleikunum 1960 sigraði gerólíkur hlaupari, Bob Hayes, sem uppgötvaðist í ruðningi og var bæði þungur og vöðvamikill. 

 


mbl.is Ítalía vann ótrúlegan sigur í boðhlaupi karla
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband