"Ólæknandi sjúkdómar" fyrri tíma. Ný lyf ljós í myrkri.

Tilvera mannkyns og allra lífvera er vörðuð baráttu þeirra við sjúkdóma af öllu tagi. Sumir hafa birst í farsóttum og drepsóttum eins og nýjasta dæmið ber vitni um. 

Sumir sjúkdómar virtust óviðráðanlegir og fylgdu jarðarbúum öldum og árþúsundum saman. 

Sem dæmi má nefna holdsveikina, sem greint er frá í Biblíunni og fleiri heimildum, en úr þeirri veiki dó Hallgrímur Pétursson, þekktasta trúarskáld Íslendinga. 

Hinn mikli barnadauði hjá flestum þjóðum allt fram undir okkar tíma var að miklu leyti vegna varnarleysis gagnvart sjúkdómum, sem hafa verið að mestu kveðnir í kútinn á síðustu tímum. 

Berklar og mænuveiki voru skæðir ógnvaldar, og berkladauðinn tók þúsundir af ungu og manvænlegu fólki, miklu fleiri en spænska veikin. Dæmi um það er söngvaskáldið góða, Jón frá Ljárskógum, sem lést úr berklum langt, langt um aldur fram, kornungur að aldri. 

Sigurinn yfir mænuveikinni var stór á miðri síðustu öld og sýklalyf hafa borið vitni um öflug læknavísindi, sem hafa gjörbreytt þjóðlífinu og standa undir stórbættum lífslíkum en einnig vandamálum vegna breyttrar aldurssamsetningar fólks. 

Alzheimersjúkdómurin hefur hingað til flokkast sem ólælknandi sjúkdómur og næsta lítil von verið um breytingu þar á. 

Ef nú hillir undir möguleika á lyfjum, sem geta breytt því að meira eða minna leyti er slíkt ekkert minna en stórfrétt á alla lund. 

Þótt varast verði óhóflega bjartsýni um jafn afgerandi og tiltölulega auðveldan sigur og yfir mænuveiki er þróun nýrra lyfja engu að síður ljós í því myrkri sem ríkt hefur fram að þessu. 


mbl.is Fagnar þróun alzheimerlyfja
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sæll Ómar,

Já, "..öflug læknavísindi, sem hafa gjörbreytt þjóðlífinu.." svo og einnig valdið læknisfræðilegum hörmungum og dauðsföllum, en þetta er eitthvað sem menn þora alls ekki að tala um. 
KV.  




Þorsteinn Sch Thorsteinsson (IP-tala skráð) 14.9.2021 kl. 17:36

2 identicon

Þorsteinn Sch Thorsteinsson (IP-tala skráð) 14.9.2021 kl. 17:47

3 identicon

Separating Science from Promotion Evidence from Propaganda - ppt download
DANGEROUS MEDICINE & DODGY REGULATORS - Do No Harm Health

Þorsteinn Sch Thorsteinsson (IP-tala skráð) 14.9.2021 kl. 18:10

4 identicon


Þorsteinn Sch Thorsteinsson (IP-tala skráð) 14.9.2021 kl. 23:00

5 Smámynd: Már Elíson

Noh...Bara nýr "Steini Breim" mættur á vef Ómars.....cool

Már Elíson, 14.9.2021 kl. 23:02

6 identicon

Þorsteinn Sch Thorsteinsson (IP-tala skráð) 15.9.2021 kl. 11:28

7 identicon


Þorsteinn Sch Thorsteinsson (IP-tala skráð) 22.9.2021 kl. 00:21

8 identicon

Þorsteinn Sch Thorsteinsson (IP-tala skráð) 22.9.2021 kl. 01:52

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband