29.8.2022 | 23:46
Ef íslensku vindmyllurnar verða svipaðar hér og í Wales, hvað þá?
80 kílómetra vindhraði þykir kannski mikill vindur í Wales, en gaman væri að vita hvernig vindmyllur þar í landi, sem fjúka í slíkum vindi þar í landi, myndu standst tvöfalt meiri vindhraða, sem er algengur hér á landi.
Einn af stærstu vindmyllugörðunum, sem á að reisa hér verður uppi á Brekkufjalli í Hvalfirði og á að teygja spaðana upp í meiri hæð en nemur hæð Skálafells, þar sem í venjulegum janúar getur komið roktímabil, sem verður tífalt lengra en tímabil með miklu minni vindi í Wales sem yfirbugaði þá velsku.
Vindmylla fauk í roki | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
50 mílu hraða ekki kílómetra. Og það er vandfundið það sem ekki getur bilað. Ef ekki hefði komið til bilun í stjórnbúnaði blaðanna hefði vindmyllan vel þolað þennan vind og gott betur.
Vagn (IP-tala skráð) 30.8.2022 kl. 08:06
24 metrar á sekundu
Hallgrímur Hrafn Gíslason, 30.8.2022 kl. 12:28
Það er örugglega hægt að smóða vindmillu sem fýkur ekki. Eða ekki alveg strax.
Þá endist hún væntanlega nógu lengi til þess að dreyfa plast-ögnum um sveitir landsins. Þær eru vinsælar núna, skilst mér.
Ásgrímur Hartmannsson, 30.8.2022 kl. 18:28
Islensk yfirvöld jafn fávís og kjánaleg eins og ávallt. Skárra að virkja einn túristafoss í stað þess að eyðileggja allt útsýni á Íslandi með vindmyllum.
Loncexter, 30.8.2022 kl. 19:01
Hvernig ættli þessar vindmyllur standi af sér bleytukrapahríð í frosti?
Jóhannes (IP-tala skráð) 31.8.2022 kl. 17:49
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.