Framfarirnar virðast nú vera mestar hjá dýrustu rafbílunum.

Þegar Nissan Leaf seldist vel hér í upphafi rafbílabyltingarinnar var rafhlaða hans aðeins 24 kílówattstundir og raundrægnin við íslenskar aðstæður gat dottið niður í rúmlega 100 kílómetra. 

Síðan hefur úrvalið stórbatnað og flestir rafbílar geta státað af 300 til 400 kílómetra drægni. 

Á þeim tíma sem Mitsubishi Outlander seldist einna best af tengiltvinnbílunum voru rafhlöður flestra slíkra bíla aðeins á annan tug kílóvattstunda og drægnin við íslenskrar aðstæður aðeins nokkrir tugir kílómetra. 

Síðan þá hafa átt sér stað framfarir hjá dýrustu bílunum, sem draga mjög úr hættunnni á því að þeim sé að mestu ekið fyrir bensínafli. 

Er nú svo komið að sá tengiltvinnbíll, sem lengst dregur á rafmagninu einu kemst yfir 100 kílómetra, og gefur auga leið að slíkur bíll kærkominn ávinning hvað það snertir að hægt að aka honum á rafaflinu einu. 

Eftir stendur að auka framfarir í úrvali ódýrari rafbíla, en erfitt er að bjóða slíka nema án möguleika til hraðhleðslu. 

Síðuhafi hefur nú sex ára reynslu af akstri slíks bíls, sem aðeins er hægt að hlaða með heimilisrafmagn, Tazzari Zero tveggja manna bíl, sem kostaði nýr um tvær milljónir. 

BL hefur flutt inn svipaða smávaxna rafbíla af gerðinni Invicta, sem mældust í prófun síðuhafa með ríflega 115 kílómetra drægni á 18 kílóvattstunda rafhlöðum og kostuðu 2,4 milljónir. 

En tveggja manna rafbílar á borð við Renault Twizy og Citroen Ami / Opel Rocks-e hafa ekki enn selst hér og er því enn einhver bið eftir "rafbíl litla mannsins" og helst að vonast til að aukið framboð á vel með förnum notuðum rafbílum kunni að bæta eitthvað úr. 


mbl.is EQS hápunktur í haustferð Öskju
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásgrímur Hartmannsson

Ef rafbílar eru notaðir rétt (sem yrði gert sjálfkrafa ef fólk fengi að bera í friði meða að velja þá sjálft, í stað þess að þeim væri þröngvað uppá það) þá væri 100-150 km drægni alveg nóg.

Allir notendur í Reykjavík gætu lifað við það.

Nú, ef menn ætla að nota rafbíla eins og venjulega fjölskyldubíla, á þrfa þeir að draga 2X meira en venjulegur eldsneytisknúinn bíll.

Af augljósum ástæðum.

Fólk þarf að fá að velja rétta verkfærið.

Og þar sem rafbílar eru af einföldum ástæðum dýrustu verkfæri, þá er ljóst að þróunin verður mest þar sem mest fæst fyrir þá.

Það er farið að verða óþægilega augljóst að rafbílar verða bara dýr leikföng næstu 100 árin, ef ekki að eilífu.

Ásgrímur Hartmannsson, 26.10.2022 kl. 15:22

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband