Ný og ný ofríkismál Bílastæðasjóðs.

Nýjum dæmum um ofríki á vegum Bílastæðasjóðs virðist fjölga með vaxandi hraða. 

Í fyrra tóku gildi ný umferðarlðg sem kættu mjög starfsmenn sjóðsins vegna þess að með því opnuðust auknir möguleikar til að breyta reglugerðum í þessu efni til að auðvelda sókn sjóðsins á hendur bílaeigendum. 

Sú hefur líka orðið raunin, og var eitt þeirra rakið hér á síðunni í hitteðfyrra. Í því máli hafði sjóðurinn að engu þinglýstan eignarétt eigenda blokkarinnar sem í hlut átti. 

Í samtölum við talsmenn sjóðsins hældust þeir um, að með nýju reglugerðinni gætu þeir látið lögreglu fjarlægja bíl og gera hann upptækan.

Væri best fyrir bíleigandann að hafa sig hægan, því að ef Bílastæðasjóður vildi, gæti hann látið fjarlægja fyrirvararlaust alla bíla sem stæðu fyrir framan bílskúradyr borgarinnar.   


mbl.is Borgin rýfur 80 ára hefð og bannar akstur íbúa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þorsteinn Siglaugsson

"Varmenni óskast til starfa. Durtsháttur er skilyrði" segir í atvinnuauglýsingum Bílastæðasjóðs. Svo fá þeir víst bónus og hann er tengdur fjölda kvartana, því fleiri kvartanir, því hærri bónus, og ef það verða málaferli kemur jólabónus ofan á.

Þorsteinn Siglaugsson, 21.2.2024 kl. 22:32

2 Smámynd: Sigurður Þorsteinsson

Þorsteinn Bilastæðasjóður er bara tæki í kerfinu. Kerfið er á móti bílum, flugvélum og ungu fólki. Kerfið elskar lestar, af því að það er svo mikið af lestum í útlöndum. Lestirnar elska bara ekki meirihlutann í Reykjavík, og einn stærsti framleiðandi lesta í heiminum gaf hugmyndum um lestarsamgöngur á Íslandi falleinkunn. Það herðir liðið bara til að halda áfram. Náttúruöflin vildu heldur ekki flugvöll í Hvassahrauni. Flugvöllurinn skal bara þangað samt. Var ekki verið að skipta um borgarstjóra um áramótin? Átti auglýsingin ekki að vera um að varmenni óskaðist til að leiða borgarstjórnarflokk Samfylkingarinnar í áframhaldandi stefnu? 

Sigurður Þorsteinsson, 23.2.2024 kl. 08:21

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband