14.11.2008 | 11:13
Tengd "utanaðkomandi mál"?
Smám saman birtist hinn bitri sannleikur og fer að grilla í heildarmynd vandræða Íslands í gegnum þá þoku ósannra yfirlýsinga, sem við höfum búið við í allt haust og raunar síðan í mars. Óskhyggja og afneitun hafa ráðið för og valdið því að ráðamenn þjóðarinnar hafa ekki haft neina yfirsýn yfir raunverulega stöðu okkar.
Bendi á næsta bloggpistil minn á undan þessum varðandi veruleikaflóttann sem hefur alið af sér rangar upplýsingar til þjóðarinnar svo dögum og vikum skiptir.
Utanaðkomandi mál tefja | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Maður trúar ekki lengur eina einasta setningu frá þessum mönnum. Ríkisstjórnin á að segja af sér sem fyrst. Gosanefið er orðið ansi langt.
Úrsúla Jünemann, 14.11.2008 kl. 11:21
Þetta fólk er búið að ljúga svo illa að okkur að mér verður flökurt. Lygakeppni stjórnmálamanna verður að ljúka. Þið hafið allir með tölu unnið. Hérna í Svíþjóð er hlegið að Íslendingum. Við höfum, við harðdugleg þjóðin - við höfum verið gerð að aðhlátursefni annara þjóða af stjórnmálamönnum og bankavesírum íslenskum.
Þetta er hryggilegra en orð fá lýst!
Ég krefst utanþingsstjórnar!
Baldur Gautur Baldursson, 14.11.2008 kl. 12:11
Geir „læt segja mér það tvisvar“ Haarde er annað hvort illa upplýstur eða ósannsögull. Hvorugt gott í hans stöðu.
Hjálmtýr V Heiðdal, 14.11.2008 kl. 14:09
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.