Gömul saga: Hver lak ?

Alltaf finnst mér jafn dásamlegt þegar stórmál koma upp í kjölfar þess að leynilegum trúnaðarupplýsingum hafi verið "lekið" að þá snýst málið upp í það að aðalatriðið sé hver lak því í fjölmiðla eða til almennings en innihald þess sem lekið var verður að aukaatriði.

Davíð Oddsson var snjall í því á sínum tíma að halda upplýsingum leyndum ef með þurfti og var klassadæmi um það þegar því var haldið vandlega leyndu fyrir kosningarnar 2003 að herinn væri á förum.

Og nú ræða menn um ekki síðri snilli Davíðs að leka heppilegum upplýsingum eða að láta í veðri vaka að hann búi yfir óþægilegri vitneskju, samanber ræðuna frægu hjá viðskiptaráðinu í haust.


mbl.is Birgir aflétti leynd
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Árni Gunnarsson

Eiginlega finnst mér nú að þessi þjóð eigi ekki innstæðu fyrir meiri virðingu en þarna lýsir af. Í næstu alþingiskosningum er mikil þörf á að fjarlægja flesta okkar fulltrúa út af löggjafarþinginu. Og lofta vel út áður en nýir fá að spreyta sig.

Árni Gunnarsson, 10.2.2009 kl. 19:35

2 identicon

.

Það er eitt sem kannski styður þessa kenningu um leka flokksholls starfsmanns í ráðuneyti Jóhönnu

Það er þessi frétt

Nema lekinn hafi komið úr Svörtuloftum. Fær ekki Seðlabankinn afrit?

101 (IP-tala skráð) 10.2.2009 kl. 19:42

3 identicon

Suðurneskarlar921 konur 719alls 1.640
    
Nýjustu tölur frá Suðurnesjum er að 31 einstaklingar bætust við skrána í dag og eru því 1640 manns atvinnulausir á þessu svæði í dag. Mér sýnist að þegar kosið verður til Alþingis þann 25.apríl nk. verði þessar tölur komnar í 2500 manns a.m.k enda er ekkert í spilunum hvað stjórnmálamenn sem hafa valdið ætli sér að gera í alvörunni til að snúa þessari þróun við. Þingflokkarnir eru núna að undirbúa kosningarbaráttuna með mikið fé að vopni til að afvegaleiða kjósandann þ.a.s að fá hann til að trúa að gömlu flokkarnir sem bera ábyrgðina á ,,Hruninu Mikla'' séu  þeir einu sem geti leitt þjóðina út úr ógöngunum sem hún er í vegna þessara hagsmuna sem reka þessa flokka.
Baldvin Nielsen Reykjanesbæ 

B.N. (IP-tala skráð) 10.2.2009 kl. 21:23

4 Smámynd: Sævar Helgason

Forsætisráðuneytið fékk eitt eintak og Seðlabankinn eitt eintak og allt í trúnaði.  Það er síðan Sjálfstæðismaður sem gerir fyrirspurn um málið  á alþingi- áður en forsætisráðherra hefur vitneskju um að þessi tölvupóstur sé til.  Sigurður Einarsson fv bankastjóri Kaupþings kvartar sáran yfir því að trúnaðarsamtöl við Seðlabankastjórann hafi yfirleitt birst í Mbl. daginn eftir í umsjón Agnesar B. á Mbl.   Mikill lekandi þar.

Sævar Helgason, 10.2.2009 kl. 21:49

5 identicon

Davíð á einhverjar óþægilegar upplýsingar um flesta samstarfsmenn sína segja menn. Hann getur því sent þeim eitraðar pillur ef þeir svíkja hann. Sumir segja að þetta sé ástæðan f. því að Geir og co. verja hann fram í rauðan dauðann.

Ari (IP-tala skráð) 11.2.2009 kl. 02:39

6 Smámynd: Þorsteinn Briem

Halldór Blöndal heitir einn,
hans er sonur ekki seinn,
og dáða var bankadrengur,
hann Davíð en ekki lengur.

Þorsteinn Briem, 11.2.2009 kl. 18:11

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband