Ekkert nýtt...

Þetta er tákn um eldheitt ástargen /
og ekkert nýtt, sem kemur nú á daginn /
því fyrir hundrað árum prúð og pen /
pörin komu ríðandi í bæinn. /
mbl.is Stunduðu kynlíf á ofsahraða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Já það er rétt Ómar og ef ég fer rétt með þá neitaði Ólafur Ketilsson að taka við greiðslu hjá pari sem kom með honum í bæinn og bar fyrir sig að þau hefðu komið ríðandi í bæinn þó að í aftursæti rútunar hafi verið og honum bæri því engin greiðsla fyrir aksturinn,og par sem ég ók í leigubíl mínum til Kef ferðaðist á sama máta,ég hins vegar rukkaði um afnot af skottlokinu.

Kveðja Laugi,mikill náttúru unnanndi

Laugi (IP-tala skráð) 13.4.2009 kl. 20:44

2 Smámynd: Marta smarta

Svo er líka hægt að fara á "frúnni" á svaka hraða í a,m,k, 10.000 fetum. 

Marta smarta, 13.4.2009 kl. 20:53

3 Smámynd: Ómar Ragnarsson

Í tíu þúsund feta hæð er engin lögga á ferð.

Ómar Ragnarsson, 13.4.2009 kl. 21:35

4 Smámynd: Sigurlaugur Þorsteinsson

Ert þú nú alveg viss Ómar þarft þú ekki að kíkja í baksýnisspegilinn???????

Sigurlaugur Þorsteinsson, 13.4.2009 kl. 21:42

5 identicon

Eins og Svavar Gests sagði forðum:" Ef Ómar Ragnarsson hefði verið Englendingur eða Bandaríkjamaður væri hann löngu orðinn heimsfrægur". En sem betur fer fyrir okkur er hann Íslendingur og á margfalt Íslandsmet í skemmtilegheitum. Ómar lengi lifi. 

Benjamín Baldursson (IP-tala skráð) 13.4.2009 kl. 23:08

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband