Silfur Egils ?

Egill Skallagrímsson er talinn hafa verið upp um það bil frá 910-990.

515783A

Það er því hægt að gamna sér við það að silfurmyntin, sem fannst á Þingvöllum í vor og getur hafa borist til Íslands fyrir 990, sé hluti af silfursjóði Egils, sem hann íhugaði að dreifa yfir þingheim til þess að sjá almennilegan bardaga áður en hann sneri tánum upp.

Hann hefur kannski gert smá prófun og kastað nokkrum silfurpeningum upp í loftið til að kanna viðbrögðin, áður en hann ákvað, hvort hann ætti að láta allan sjóðinn gossa eða grafa hann og fela eins og sagt er að hann hafi gert.

Skemmtileg pæling hjá Agli og minnir á söguna af séra Árna Þórarinssyni, sem var lítt hrifinn af þáverandi biskupi, sem Árni sagði getað "afkristnað heilt sólkerfi."

Presturinn í Stykkishólmi var þá kominn með elliglöp og var sagt að þegar hann sigldi inn til New York í síðustu utanlandsferð sinni hafi honum orðið að orði: "Ansi eru þeir búnir að byggja mikið í Hólminum."

Skömmu síðar hitti séra Árni vin sinn, sem var kunnugur prestinum gamla í Hólminum, og spurði Árni hvernig sá gamli hefði það.

Fékk hann þau svör að það væri farið að slá verulega útí fyrir honum. Honum hefði til dæmis verið sagt að halda ætti mikla hátíð á Þingvöllum og að þar yrði mikið stórmenni, meðal annars biskupinn.

En gamli Stykkishólmspresturinn misskildi þetta eitthvað og endursagði þetta þannig að til stæði að drekkja biskupnum á Þingvallahátíðinni. 

Þegar séra Árni heyrði þetta sagði hann: "Já, er hann svona ruglaður, gamli maðurinn?  En hugmyndin var góð!"  

  

 


mbl.is Silfurmynt frá 10. öld á Þingvöllum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Er ekki sjóðurinn einhverstaðar í túninu á Mosfelli?  Einhverntíma heyrði ég því fleygt.

Ái minn hann Sr. Árni var ansi skemmtileg týpa. Sagt er að þá hafi hist sá lygnasti á landinu og sá mest auðtrúa, þegar leiðir þeirra Þórbergs lágu saman.

Jón Steinar Ragnarsson, 20.11.2009 kl. 17:35

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband